Show notes
Friðrik Margrétar-Guðmundsson sendi frá sér plötuna Ymur um helgina. Hann verður gestur Víðsjár og segir frá tilurð verksins og umfjöllunarefni hennar.Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun, heldur áfram að fjalla um íslenska ljóðlist fyrri alda, í dag segir Haukur okkur frá Máríu, móður guðs, í kvæðum íslenskra skálda á miðöldum.Við heyrum af pólitískum menningarvendingum í Frakklandi sem varða Éditions Grasset útgáfufyrirtækið og rifjum upp pistil um Pissuskálina, listaverk sem jafnan hefur verið eignað franska listamanninum Marcel Duchamp en gæti hafa verið úr smiðju myndlistakonunnar Elsu von Freytag-Loringhoven

