Show notes
Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og saumað út senu úr sögunni, sem þær munu afhenda í Belgíu í næstu viku. Við hittum eina þeirra, refilssaumskonuna Kristínu Bjarnadóttur, í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í sýninguna Ég, Jóhanna, sem sýnd er í Tjarnarbíói, og við lítum til Feneyja, því það styttist í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og hefur sýning hennar fengið titilinn Pocket Universe, en verkið samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Sýningarstjórar eru þau Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn og við sláum á þráðinn til þeirra í þætti dagsins.

