Show notes
Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar nú af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins. Við lítum við líka í Gallery Berg og ræðum við Þórdísi Erlu Zoega um sýningu hennar Domestic Sci-fi. Þar vinnur Þórdís meðal annars með þá tilfinningu að nútíminn sé löngu farinn fram úr þeirri framtíðarsýn sem við ólumst upp við. Hið heimilislega er orðið að vísindaskáldskap.

