Víðsjá
Víðsjá
RÚV
Ísmús vefurinn, draumaíbúðir arkitektanema og Jötungíma kveður/rýni
50 minutes Posted Mar 31, 2026 at 4:05 pm.
0:00
50:46
Download MP3
Show notes
Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir góðan og fallegan arkitektúr. Ef við gefum okkur aðeins lengri tíma í hönnunina þá fáum við góðan arkitektúr í staðinn.“
Við kynnum okkur einnig Ísmús vefinn með yfirumsjónarmanni vefsins, þjóðfræðingnum og forritaranum Trausta Dagssyni. Og Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Jötungíma kveður sem leikhópurinn Díó sýnir í Elliðaárstöðinni.