Show notes
Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.

