Show notes
Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þáttar, en hefjum leikinn fyrir norðan, þar sem Ljóðaklúbbur Akureyrar undirbýr Ljóðamót kvöldsins í fornbókabúðinni Svörtum bókum. Þá rýnir Katla Ársælsdóttir í leiksýninguna Mömmó, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.

