Show notes
Birtingur Voltaire verður frumsýndur í nýrri leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Í raun er um rokkóperettu að ræða, en tónlistina gerði Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Við hefjum þáttinn á því að taka púlsinn á leikstjóranum og leikhússtjóranum Bergi Þór og heyra af verkinu og aðdragandanum. Franska tónskáldið Éliane Radigue lést fyrr í vikunni, 94 ára að aldri. Radigue var frumkvöðull á sviði raftónlistar og minimalisma og þekkt fyrir löng og hugleiðslukennd hljóðverk unnin með hliðrænum hljóðgervlum. Pétur Eggertsson segir okkur nánar af verkum Radigue í þætti dagsins. Og við lítum í heimsókn til Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar, sem sýnir okkur merkilegt safn sitt af verkum Laxness.

