Show notes
Í Víðsjá dagsins: samtal um myndlist og tímann og tilfinningar í Íslendingasögum.Í Hverfisgalleríi var opnuð á laugardag sýningin allt er nálægt þar sem finna má ný og nýleg verk eftir Kristinn Hrafnsson. Verkin hafa öll með sjálfan tímann að gera, hvernig hann streymir áfram á sínum skrykkjótta hraða, hvaðan hann kemur og hvert hann fer.Við hittum myndlistarmanninn í galleríinu. Við veltum líka fyrir okkur tilfinningum í Íslendingasögum, að gefnu tilefni. Að springa af stríði: Sorg og sársauki í Íslendingasögunum er yfirskrift erindis sem Sif Ríkharðsdóttir prófessor í almennri bókmenntafræði flytur í Neskirkju á morgun - þar fjallar hún um tilfinningar í þessum sagnaarfi Íslendinga og beinir sjónum sínum sérstaklega að birtingarmynd sorgar og sársauka. Þetta hefur verið rannsóknarefni hennar ásamt fleirum af fræðasviðinu, tilfinningarannsóknir á miðaldatextum þar sem tilfinningar eru skoðaðar í sögulegu samhengi.Umsjón með Víðsjá hafa Jóhannes Ólafsson og Guðni Tómasson.Ath. Rangt var farið með nafn Kristins í þættinum og beðiðst er velvirðingar á því. Tónlist:Tom Waits - Time.

