
Í þessum síðasta þætti ársins (og síðasta þætti í bili) gera Vaxtaverkir þættina upp og taka létta samantekt á því sem teymið lærði á árinu. Í lok þáttar er síðan farið yfir fjárhagsleg markmið fyrir árið 2022, því jú það er alltaf betra að segja markmiðin upphátt. Takk fyrir okkur elsku hlustendur, njótið vel og gleðilegt nýtt ár! Þangað til næst..
Dec 31, 2021
41 min

Í þessum þætti tökum við saman sjö misgóð ráð sem er gott að hafa með sér í jólagjafainnkaupunum og ættu að hafa góð áhrif á veskið.
Dec 17, 2021
31 min

Hér fáið þið svokallaðan GELLUþátt - við fengum athafnakonuna Birgittu Líf Björnsdóttur til okkar (kemur í ljós ef þið hlustið á þáttinn hvers vegna hún fær þann titil af mörgum). Við förum yfir það hvernig það sé að vera Kris Jenner Íslands, lykilatriði í markaðsetningu, hvernig sé að tvinna rekstur á skemmtistað og líkamsræktarstöð saman og hvort töskur geti mögulega verið góð fjárfesting. Þetta eru allt mikilvægar spurningar fyrir gellur og ekki gellur. Njótið.
Nov 19, 2021
32 min

Gestur þáttarins er Stefanía Ásmundsdóttir. Hún vinnur hjá ráðninga- og ráðgjafafyrirtækinu Hagvangi, er augljóslega fædd í starfið og síðan er hún líka með mjög þægilega útvarpsrödd. Við förum fyrst yfir atvinnuviðtöl og færum okkur svo yfir í launaviðtöl. Ef þú ert á leiðinni í eitt slíkt á næstunni (eða bara ekki) þá er þetta þátturinn fyrir þig. Komdu þér vel fyrir og njóttu.
Nov 5, 2021
45 min

Jæja nú er sumarfríi númer fimm lokið og Vaxtaverkir eru mættir, ferskari en aldrei fyrr. Í þessum þætti duttum við aðeins í fréttaskýringagírinn. Hvað er Evergrande? Við stiklum á stóru og gerum okkar besta í að útskýra hvers vegna þetta stóra fasteignaþróunarfélag er í brennidepli í fjármálaheiminum.
Við tökum saman fimm góð ráð til að fylgja sama hvort markaðurinn sé að leita upp eða niður. Njótið.
Oct 22, 2021
25 min

Hefurðu velt fyrir þér hvernig sé best að ræða fjármál við maka? Hvort sameiginleg fjármál henti eða ekki? Hvernig sé best að setja sér sameiginleg markmið? Eða ef þú átt ekki maka, hvort það séu engar pælingar fyrir þig í þessum þætti? Svarið er jú.
Við fengum frábæran gest til okkar, hann heitir Guttormur og er vörustjóri hjá Meniga. Guttormur er með meistaragráðu í að ræða við maka sinn um fjármál - grín. Hann er samt reynslubolti í sameiginlegum fjármálum og stórskemmtilegur. Hér fáið þið enn einn þáttinn sem er stútfullur af fróðleik en á sama tíma mjög skemmtilegur (hlutlaust mat). Njótið!
Sep 24, 2021
34 min

Elísabet Metta og Ágúst Freyr eru stofnendur Maikai. Þar selja þau acaí skálar með svokölluðum acaí berjum, svona nánast eins og hollur bragðarefur. Við fengum þau til okkar í mjög svo einlægt spjall um reksturinn og lífið. Þau eru svo ótrúlega filterslaus og skemmtileg að þetta viðtal gat ekki annað en orðið skemmtilegt. Njótið.
Minnum á afsláttarkóðan Vaxtaverkir inná tan.is fyrir alla þá sem vilja næla sér í smá brúnku fyrir helgina.
Sep 10, 2021
49 min

Mistök eru til þess að læra af þeim - þessi þáttur er sérstaklega gerður fyrir 18 ára Brynju og Kristínu ef þær væru að hlusta.
Við erum á léttari nótunum í þessum þætti, förum yfir okkar helstu sparnaðarmistök og fengum síðan engan annan en Bassa Maraj sem er low key living fyrir Vaxtaverki til þess að fræða okkur um sín sparnaðarráð.
Þessi þáttur er í boði tan.is sem ætla gefa öllum aðdáendum 15% afslátt með kóðanum "vaxtaverkir". Hver er ekki til í smá tan fyrir helgina?
Aug 27, 2021
28 min

Við byrjum á öllu þessu allra helsta um rafmyntir og hvernig þær virka en síðan er líka bara forvitnilegt að vita hvaða æsing Elon Musk er alltaf að reyna búa til í kringum Bitcoin, eru Seðlabankar heimsins að fara taka upp rafmyntir eða er Bitcoin bara komið til að vera, er Bitcoin í "crypto"heiminum Simone Biles í fimleikaheiminum?
Jul 30, 2021
1 hr 12 min

Lánamál eru og verða alltaf flókin það er því miður bara þannig. Brynja lánafulltrúi með meiru gerir sitt besta við að svara misflóknum spurningum sem Kristín leggur fyrir hana um lánamál.
Jul 2, 2021
47 min
Load more
