Valur - Hljóðvarp
Valur - Hljóðvarp
Knattspyrnufélagið Valur
Podcast by Knattspyrnufélagið Valur
SE06 - EP02
Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn við Olympiacos. Við fórum yfir allt þetta helsta en handboltinn var í fyrirrúmi. Sérfræðingurinn Arnar Daði var á línunni og við spáðum í úrslitakeppnirnar í Olís og hituðum fyrir Evrópuævintýrið sem er framundan. Í seinni hlutanum slógum við svo á þráðinn til Gústa Jó og hituðum fyrir úrslitaeinvígið í handboltanum kvennamegin, sem hefst á morgun á Hlíðarenda, þar sem við mætum Haukum. Mætum öll!
May 8, 2024
31 min
SE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi Steindórs
Þá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögðu yfir Tvíhöfða kvöldsins í körfunni og handboltanum, hituðum upp fyrir úrslitakeppnirrnar og ræddum vel og lengi um upphafið á fótboltasumrinu sem hófst um síðustu helgi. Fínn pakki fyrir spennandi kvöld framundan. Á línunni var hinn eini sanni Björgvin Páll og Tómas Steindórsson, körfuboltasérfræðingur.
Apr 10, 2024
49 min
SE05 - EP09 - Óskar Bjarni og Haukur Páll
Vængirnir hófu sig til flugs á ný og við tókum lauflétta yfirferð yfir það helsta sem hefur verið að gerast í okkar ástkæra félagi og þeir Haukur Páll og Óskar Bjarni á línunni. Gerist varla betra. Óskar talaði um stemninguna í Val þessa dagana en hann einbeitir sér nú fyrst og fremst að meistaraflokki karla meðan einn af okkar dáðustu sonum Anton Rúnarsson, fer fyrir yngri flokka starfinu. Það stoppaði ekki Anton í að vera á bekknum gegn HC Motor. Óskar fer vel yfir það einvígi og dagskrána í kringum leikinn. Það verður húllumhæ niðu í Val á laugardag og við endurvekjum Evrópukvöldin goðsagnakenndu frá því síðasta vetur. Siðan er það Haukur Páll sem er kominn í nýtt hlutverk sem aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar. Þeir félagar voru nýbúnir að stýra æfingu þegar við slógum á þráðinn. Við fórum yfir þessi kaflaskipti hjá Hauki, nýja starfið og fórum aðeins yfir þessu mögnuðu 13 ár sem hann hefur átt í Val.
Dec 1, 2023
36 min
SE5 - EP09 - Sá besti í sumar og Patrick á línunni
Í tilefni af lokum tímabilsins hjá karlaliðinu í fótbolta var blásið til uppgjörsþáttar í Vængjum þöndum. Við fengum góðan gest til að fara yfir sumarið. Jóhann Skúli kom einbeittur til leiks beint frá borg Englanna, Los Angeles. Við fórum aðeins yfir leik stelpnanna í í meistaradeildinni í gær áður en tekið var til við viðurkenningar. Hringborðið valdi besta leikmann sumarsins að sínu mati og sá var á línunni. Hlusta þarf til að komast að valinu. Þá var valið fallegasta markið, óvæntasta hetjan, besti leikurinn og fleira og fleira. Í lokin heyrðum við í Patrick okkar Pedersen en þær gleðifréttir bárust fyrir skömmu að hann ætlaði að vera hjá okkur næstu tvö árin. Við stefnum svo á svipað uppgjör kvennamegin í næsta þætti.
Oct 11, 2023
44 min
SE5 - EP08 - Gústi Jó og Finnur Freyr
Stúdíó Borgó tók vel a móti löskuðum Vængjum en Jóhann Alfreð komst ekki vegna anna við upptaka a auglýsingu. En Benni og Breki settust niður og heyrðu hljóðið i okkar dásamlegu þjálfurum, Gústa Jóh og Finn Frey. Ágúst er að fara etja kappi við rúmenska ofurliðið Dunarea en stúlkurnar okkar stoðu vel i hárinu a stjörnupryddu liði. Finnur Frey var svo með sitt lið i generalprufu i leiknum meistarar meistaranna a Sauðárkróki og við hituðum upp fyrir spennandi vetur í körfunni með honum. Einnig fékk Patrik Pedersen sinn sess enda buin að jafna sjálfan Hemma Gunn i mörkum. Þa var farið yfir herrakvöldið sem verður fyrsta föstudag i nóvember.
Sep 27, 2023
38 min
SE5 - EP07 - Fanndís, Addi Grétars og Björgvin Páll
Þvílíkur dagur fyrir þetta dropp! Við hófum okkur til flugs í hádeginu enda nóg um að vera í félaginu nú þegar handboltinn er kominn á fulla ferð. Við hreinlega lágum í símanum í tæpan klukkutíma. Slógum meðal annars á þráðinn til Fanndísar Friðriksdóttur og spurðum hana út í ferðalag stelpnanna til Albaníu, leikina þar og dráttinn á föstudag sem er framundan í Meistaradeild kvenna. Við ræddum líka lokasprettinn í Bestu deild kvenna en þegar við bjölluðum lá ekki fyrir að Fanndís og liðsfélagar færu á koddann í kvöld sem Íslandsmeistarar. Til hamingju stelpur, Pétur, Matti og þið öll! Breki og Benni gáfu skýrslu um leik Vals og FH í handboltanum á mánudagskvöld og við slógum í kjölfarið til Björgvins Páls, markmanns og nýs aðstoðarþjálfara og hleruðum hann um tímabilið framundan og Evrópuverkefnið Í Litháen um komandi helgi en menn ætla langt í þeirri keppni. Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi eiga tæknimál og Vængjum þöndum ekki alltaf saman. Því miður var seinni hluti viðtalsin við Bjögga á vitlausri rás en við treystum á að fá kappann aftur til okkar í spjall sem fyrst. Og svo er það karlaboltinn. Úrslitakeppni Bestu deildarinnar hefst um helgina og Arnar Grétarsson, þjálfari var á línunni. Við fórum aðeins yfir sumarið hjá Val, framhaldið í haust og áfram og spurðum út í framtíð Birkis Más.
Sep 13, 2023
47 min
SE5 - EP06 - Elísa Viðars - Þáttur frá 30. ágúst
Eftir sumarleyfi, tæknivesen og golfbakteríu mættum við vængstífðir og uppveðraðir á fjalir Borgarholtsskóla eða President Borgó eins og hann hefur verið kallaður. Nýtt stúdíó og ný hljóðmynd kynnt til leiks! Og það var heldur betur margt að ræða! Meðal annars var hringt í Elísu Viðars en stelpurnar okkar i fótboltanum eru að fara til Albaniu a mánudag i Evrópukeppnina og þá heyrðum i Valsara vikunnar sem ætlar að endurvekja golfmót Vals núna í september. Við ræddum körfubolta, fyrirkomulagið á sýningarréttinum í handboltanum, 40 ára afmælishátíð Herrakvölds Vals og hvernig eigi að panta sér Hlölla í Öskjuhlíðinni. Allt þetta rúllaði a rúmum 40 mínútum en tók samt marga klukkutíma i framleiðslu enda eiga Vængirnir og tæknimál ekki alveg skap saman. Við þökkum Leifi Benediktssyni fyrir hvatninguna og stefnum á að að taka upp fleiri þætti sem fyrst.
Sep 13, 2023
42 min
SE5 - EP05 - Allt í gangi, afmælisdagur og Birkir Már
Afmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórleik á dögunum gegn KR-ingunum og lagði upp þrjú mörk. Við fórum yfir leikinn sem hann segir jafnvel komast á topp fimm listann yfir bestu leiki sem hann hefur tekið þátt í. Og þar er af nógu að taka. Við ræddum líka úrslitaeinvígið í körfunni sem er við suðupunkt en Birkir hefur ekki látið sig vanta á þá leiki. Við erum orðnir feykispenntir fyrir leiknum á morgun og upphitun í Fjósinu frá væntanlega miðjum degi. Við ræddum líka úrslitaeinvígið framundan við ÍBV í kvennahandbolta og og okkar nýjustu Íslandsmeistarara í körfu kvenna. Við sögu kemur líka háskólanám í sænsku og Tik-Tok vídjó, svo já, það var farið vítt yfir um það bil 40 mínútum. Hlökkum til morgundagsins og að sjá ykkur í næstu stríðum!
May 11, 2023
39 min
SE5 - EP05 - Fyrsti leikur í bestu og úrslitakeppnirnar innanhúss
Arnór Ben, einn harðasti stuðningsmaður Vals settist niður með Vængjunum að loknum leik Vals og Stjörnunnar í Origo í úrslitakeppninni í körfu karla. Við höfðum nauman tíma áður en húsinu var lokað en ræddum stórsýningu Kára Jónssonar í leiknum, stöðuna í einvíginu við Stjörnuna og Hauka kvennamegin í körfunni og mögulegan þríhöfða hjá okkur Völsurum á sunnudaginn næstkomandi þegar Valur spilar meðal annars við Blika í Bestu deild karla. Þá gerðum við upp leikinn við ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildar karla en Arnór er einn þeirra sem heldur úti Fasteignafélaginu á FB sem skilar skýrslum um leikina í Bestu. Njótið hér. Eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Apr 12, 2023
27 min
SE5 - EP04 - Farið yfir sviðið og Arnar Grétars í spjalli
Við settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka! Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflokkunum í körfunni nú þegar stutt er í úrslitakeppnina. Og svo er það morgundagurinn! Framundan er sannkallað stríð gegn þýska stórliðinu Göppingen hjá strákunum í handboltanum og ljóst að Evrópuhöllin okkar mun skartasta sínu fegursta annað kvöld. Þetta verður geggjað! Óskari Bjarna fékk sérstakar hamingjuóskir með stórafmælið á dögununum og í seinni hluta þáttar kom svo Arnar Grétarsson í heimsókn. Það er alltaf gaman að hlusta á Arnar. Strákarnir hans unnu Víking í vikunni og eru að fara til Tene að tana og æfa en nú er komið að lokahnykknum á undirbúningstímabilinu fyrir alvöruna sem hefst 10. apríl Þeir stefna hátt – eins og alltaf. Sjáumst hress á morgun á Evrópukvöldi með gleðina að vopni!
Mar 20, 2023
38 min
Load more