Undirmannaðar
Undirmannaðar
Undirmannaðar
Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.
155. Undirmannaðar - Júlía Arnarsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Júlía Arnardóttir, tveggja barna móðir og verkfræðingur. Júlía og maðurinn hennar Skúli fluttu til San Francisco til að mennta sig og fluttu í kjölfarið til Stokkhólms þar sem þau hafa eignast 2 börn.Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, hvernig hún kynnist Skúla, dvölina og skólann í San Francisco, flutningana og dvölina í Stokkhólmi ásamt því að fara vel yfir meðgöngur og fæðingar barnanna.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna🧸 Kids-World💚 Lyfjaval💦 Happy Hydrate
Aug 13
2 hr 48 min
154. Undirmannaðar - Guðrún Lóa
Viðmælandi vikunnar er Guðrún Lóa, tvíburamamma og lyfjafræðingur.Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, menntaskólann, lyfjafræðina og ævintýri í Austurríki. Sjokkið að komast að því að eiga von á tvíburum, tvíburalífið og DNA rannsókn sem kom skemmtilega á óvart!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna🧸 Kids-World💚 Lyfjaval
Aug 6
1 hr 36 min
153. Undirmannaðar - Lára & Embla
Viðmælendur vikunnar eru Embla og Lára, tveggja barna mæður og framkvæmdaóðar gellur. Þær sögðu okkur frá því hvernig þær kynntust, ferðalögunum saman, meðgöngum og fæðingum. Að sjálfsögðu ræddum við líka framkvæmdirnar sem þær hafa farið í síðustu ár, m.a. á drauma húsinu.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🍕Neo pizza
Jul 23
1 hr 50 min
152. Undirmannaðar - Svandís Péturs
Viðmælandi vikunnar er Svandís Péturs, þriggja barna móðir.Svandís sagði okkur frá skemmtilegri sögu þegar hún og Hörður kynntust, ævintýrunum fyrir barneignir, hvernig kökubaksturinn spratt upp, að eignast börn með stuttu millibili, að eiga barn með heyrnarskerðingu og lífinu og tilverunni. Andrea og Svandís uppgvötuðu í þættinum að þær væru líklega “týndar systur”Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🍕Neo pizza
Jul 16
2 hr 10 min
151. Undirmannaðar - Pálína Georgs
Viðmælandi vikunnar Pálína Georgsdóttir, fjölburamamma, viðskiptafræðingur, dansari og leikari, svo fátt eitt sé nefnt.Pálína er eina konan á Íslandi, sem vitað er um, sem hefur orðið ófrísk af fimmburum. Hún sagði okkur á einlægan hátt frá þeim tíma, áfallinu og öllu sem því fylgdi. Pálína er fædd og uppalin Mexíkó og hún sagði okkur frá uppvaxtarárunum, flutningum til Íslands, ólíkri menningu, uppeldi og svo margt annað skemmtilegt.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🍕Neo pizza
Jul 9
1 hr 57 min
150. Undirmannaðar - Birna Rún
Viðmælandi vikunnar er Birna Rún, tveggja barna móðir, leikkona og grínisti.Birnu þarf vart að kynna enda farið eins og eldur um sinu í grínheiminum. Það var vægast sagt hlegið mikið og grínað en líka farið inná erfiða tíma. Birna segir okkur meðal annars frá því hvernig var að verða mamma ung og gefur okkur innsýn í listaheiminn.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval💦 Happy Hydrate🍨 Gaeta Gelato
Jul 2
2 hr 38 min
149. Undirmannaðar - Sóldís Nína
Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🧡 Serrano💦 Happy Hydrate🍨 Gaeta Gelato
Jun 25
2 hr 48 min
148. Undirmannaðar - Rakel Másdóttir
Viðmælandi vikunnar er Rakel Másdóttir, tveggja barna móðir og verðstýringar- og verkefnastjóri Samkaupa. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, fimleika”uppeldið”, fæðingarnar, en eldri strákurinn þeirra fæddist töluvert fyrir tímann og segir Rakel okkur frá því hvað olli því ásamt því að ræða lífið, að láta ekkert stoppa sig og svo margt fleira skemmtilegt.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🧡 Serrano💦 Happy Hydrate🍨 Gaeta Gelato
Jun 18
1 hr 47 min
147. Undirmannaðar - Erna Ómarsdóttir
Viðmælandi vikunnar er Erna Ómarsdóttir, þriggja barna móðir. Erna og maðurinn hennar, Guðmundur hafa gengið í gegnum erfiða tíma og sagði hún okkur á einlægan og hugrakkan hátt frá barnsmissi, fyrirburafæðingu og öllum áskorunum sem því fylgdi. Hún sagði okkur einnig frá lífi fjölskyldunnar í dag, listaferlinum, búsetu erlendis og margt fleira!Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🧡 Serrano💦 Happy Hydrate🍨 Gaeta Gelato
Jun 11
2 hr 15 min
146. Undirmannaðar - Nína Líf
Viðmælandi vikunnar er Nína Líf. Hún er gift Tómasi Aroni og saman eiga þau tvo syni. Við ræðum uppvöxt, ástina, fjölskyldulífið, ferðalög og þau krefjandi verkefni sem lífið hefur fært þeim, þar á meðal missi, heilabilun og aflimun í nánustu fjölskyldu.Þátturinn er í samstarfi við:🌱 Nettó & Änglamark💫 Smáralind💙 Sjóvá🔑 Félag lykilmanna💚 Lyfjaval🧡 Serrano💦Happy Hydrate🍕Flatey
Jun 4
2 hr 21 min
Load more