
Hin dáða og sívinsæla Blóðmör snýr aftur til tónlauks eftir hart nær tveggja ára þögn í þeim málaflokki. Nýir meðlimir kynntir til leiks, ný tónlist rædd, nýir lagatitlar o.s.frv.Blóðmör eru:Haukur Þór ValdimarssonAndri Eyfjörð JóhannessonÓttarr Daði Garðarsson ProppéTónlist í þættinum:Sigga - la - fó - BÚGDRÝGINDI (Kúbakóla, 2002)Falska hetjan - BLÓÐMÖR (Í Skjóli Syndanna, 2021) Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
May 15, 2024
33 min

Það var eitthvað við Andlát. Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar hvaðanæva af Stór-Höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæ bundust skapandi böndum.Hver fílar ekki risastór og grípandi riff sem grúva eins og djöfullinn? Erindi sem dauðarokka líkt og við einhverja blóðtjörn á Náströnd? Svo er það haltu-kjafti-ekkert-helvítis-rugl trommuleikur og bassi sem gætir þess að það sé malbikað þétt og vandlega yfir lifendur og liðna. Samlíkingar? Það er alveg hægt að fara þangað líka. Cannibal Corpse að sprengja fyrir jarðgöngum ásamt þýsku geðsjúllunum í Acme. Já, já. Aftershock inn í brennandi vöruskemmu á meðan þeir spila allra hörðustu riff Pantera. Því ekki það?!?Hvað sem því líður þá eru hjólför Andlát enn greinileg eftir öll þessi ár.Andlát skipuðu (meðal annarra):Bjarki Fannar Atlason (Finnegan)Valur Árni Guðmundsson (Ask The Slave, Squirt)Haukur Valdimar Pálsson (Myra, Squirt)Sigurður Trausti TraustasonMagnús Örn Magnússon (Gyllinæð, Stegla) Tónlist í þættinum:What Was Intended - ANDLÁT (Mors Verum, 2004)Threatened - LIVING SACRIFICE (Reborn, 1997)Broken - MARTYR A.D. (The Human Condition in Twelve Fractions, 2000)The Martyr's Blood - HEAVEN SHALL BURN (Whatever It May Take, 2002) Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
Apr 8, 2024
2 hr 4 min

Heill þáttur um eitt af eftirminnilegustu og dáðustu gítarsólóum þungarokkssögunnar... Því eins og Snorri Barón sagði: „Gítarsóló eru framtíðin.“ Þetta vita öll.Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik og margra hæða músíkölsku sólói Alex Skolnick (Testament, Savatage, Metal Allegiance, Trans-Siberian Orchestra) í titillagi plötunnar Practice What You Preach (1989) með Testament. Þeim til fulltingis voru Sigurgeir Sigmundsson (Drýsill, Gildran, Big River Band o.fl.), Þráinn Árni Baldvinsson (Skálmöld, Kalk, Klamedía X) og Sigurjón Óli Gunnarsson (Devine Defilement, Epidermal Veil, Holdris et al).Á einhvern lífrænan máta þróast þátturinn yfir í minningar um og velþóknun á Björgvini Gíslasyni, gítarleikara og mannvin, en hann lést fyrir skemmstu. Blessuð sé minning hans.Tónlistin í þættinum:- SEVEN SPIRES "Almosttown" (2024)- PELICAN "Á sprengisandi" (1974)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
Mar 20, 2024
1 hr 59 min

"Fjólublátt hraun við barinn"Hin leyndardómsfulla Íslenska þungarokkssveit, BLEEDING VOLCANO (1990 og 1992), fór mikinn þrátt fyrir stuttan líftíma. Má segja að sveitin hafi búið í einhverju einskismannslandi hvar ein þungarokksstefna virtist hvorki mæta né taka við af annarri. Þetta var stuttur tími en í þessum glugga átti margt og mikið sér stað og er saga BLEEDING VOLCANO furðu "kjötuð" þegar upp er staðið. Þótt þeir hafi verið sér á báti hér heima þá voru þetta drengir með metnað og höfðu augastað á erlendum miðum enda átti þeirra þunga og melódíska rokk samtón með því ferskasta út í heimi á þeim tíma, tónlist sem átti eftir að taka yfir að stórum hluta. BLEEDING VOLCANO hefði klárlega átt erindi ytra. Það er þetta með að vera réttir menn, á röngum stað á réttum tíma.Hallur Ingólfsson (trommur), Sigurður Gíslason (gítar) og Vilhjálmur Goði (söngur) mættu í hljóðver Stokkið í eldinn og voru afburðar skemmtilegir viðmælendur. Samtal þetta veitir einstaka og ríka innsýn inn í rokklandslagið eins og það var á þessum tíma: mikið af tengingum, afhjúpunum, nöfnum á spilurum og hljómsveitum þess tíma o.s.frv. Saga rokksins, sannarlega. Guðmundur Þ. Sigurðsson (bassi) búsettur í Kanada lét svo í sér heyra símleiðis og gammurinn gaus sem aldrei fyrr. Aukinheldur var demó grafið upp sérstaklega fyrir þennan þátt ásamt tónleikaupptökum. Eina hljóðversskífa sveitarinnar, Damcrack, kom út 1. október árið 1992. Hæg og kremjandi aurksriða kemur í huga eða vel vopnað risa-beltisdýr sem ekki verður stöðvað. Lögin á Damcrack velta áfram af grimmri sannfæringu. Eldfjallið er virkt, eftir allt saman, og reiknað er með miklu sprengjugosi 21. Mars í Bæjarbíó. Aðeins í þetta eina skipti! Það verður mikið um dýrðir. Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Mar 16, 2024
1 hr 50 min

Smári Tarfur og Birkir Fjalar rifja upp ljómandi skemmtilegt og gott viðtal við DEVINE DEFILEMENT. Ástæðan var ný plata -- Age Of Atrocities -- sem var í vændum, plötusamningur og almenn ævintýri sveitarinnar á þessum tímapunkti á ferli hennar.Arek "Peppaðastur" Alejnikov (bassi/bakraddir) og Ingólfur Ólafsson (söngur) eru dæmalaust góðir gestir þegar kemur að þvaðri líkt og heyrist hér.Njótið.Tónlist í þættinum:Inside - MORS VERUM (The Living, 2021)Autoerotic Amputation - AFTERBIRTH (In But Not of, 2023)Raised in Victory / Razed in Defeat - DYING FETUS (Make Them Beg For Death, 2023)S.C.U. - DEVINE DEFILEMENT (Age Of Atrocities, 2023)Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð). Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Mar 6, 2024
52 min

Tveir aldraðir leiðindaskarfar finna sig knúna til að ræða lög sem þeir þurfa alls ekki að heyra aftur. Hvernig fer sjóferð sú?Tónlist í þættinum:Sinew Censer með SPECTRAL VOICE af Sparagmos (2024) Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð). Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Mar 1, 2024
55 min

Nú er lag. Nú skal fagnað. En fyrst... Í lok nóvember 2023 kom út ógurleg þröngskífa sem minnti okku ekki bara á að UNE MISÉRE væru alls ekki af baki dottnir (þrátt fyrir töluvert mótlæti), heldur að þeir eru ákafari, harðari og þyngri en nokkru sinni. Það hreinlega gustar af lögunum á Damned þröngskífunni, flutningur eins og hann gerist bestur og hljómurinn svakalegur. Hlustið á Damned. Mætið á útgáfutónleikana.Nema hvað, tveir meðlimar sveitarinnar mættu í viðtal til okkar 23. nóvember 2023 á X977 og það gefur að heyra hér í þessum þætti.UNE MISÈRE heldur útgáfutónleika fyrir nýjustu útgáfu sína DAMNED á Kex Hostel þann 9. Febrúar 2024. Platan verður spiluð í heild sinni og fær hljómsveitin sér til liðsauka rapparann Emmsjé Gauta til þess að sjá um upphitun.UNE MISÈRE skipa:Fannar Már OddsonGunnar Ingi JonesBenjamín Bent ÁrnasonÞorsteinn Gunnar FriðrikssonRúnar GeirmundssonDaníel Máni Konráðsson Tónlist í þættinum:This is Where We Kill Time - CLIFF CLAVIN (The Thiefs's Manual, 2010)Theory Of Mind - KUBLA KHAN TX (Netskífa, 2023)God- CELESTINE (At The Borders of Arcadia, 2007)Drown - UNE MISÉRE (Damned, 2023)Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð). Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Feb 7, 2024
1 hr 15 min

Hann er kominn heim! Tarfurinn hefur lokið útlegð sinni og við fögnum því auðvitað með því aða) Vakna af værum og lööööngum blundib) Kíkja á nýjasta nýtt hjá okkur báðumc) Tíunda hvað sé á döfunnid) Stökulsgagnrýni (Kerry King)e) Stefnulaust þvaðurf) Drekka teVið minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð). Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Feb 5, 2024
54 min

Hugsjónamennirnir Jónas Haux og Hörður Jónsson, báðir meðlimir Morpholith, mættu í kaffi hjá strákunum til að ræða Hellinn Metalfest #3 (fyrir alla aldurshópa) sem fram fer 14. október næstkomandi, tilurð og stöðuna á Morpholith þessi dægrin, pælinguna á bak við og tilgang Reykjadoom (áður Doomcember) en síðast en ekki síst tilvonandi heimsókn doom og sludge metal risanna í Bongripper. Hellirinn Metal Fest #3 fer fram 14. október, í TÞM/Hellinum og hefst klukkan 18 fyrir alla aldurshópa.Fram koma:ULTRA MAGNUSBLÓÐMÖRDAUÐYFLINNYRSTALCHEMIAZHRINEBONGRIPPER koma fram á Gauknum 26. október næstkomandi ásamtSLOR og MORPHOLITH.Tónlist í þættinum:* It's Alright - ALCHEMIA (New Reality, 2021)* Orsök - NYRST (Orsök, 2020)* Satan - BONGRIPPER (Satan Worshipping Doom, 2020)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
Oct 8, 2023
1 hr 3 min

Það er alltaf mikill glaumur og gleði þegar Reykjavík Deathfest á sér stað. Í raun ættum við að vera þakklát fyrir þessa hátíð og hugsjónastarfið sem hún grundvallast á. Metnaður og stemmning, tengingar og uppgötvanir, það er það sem allt snýst um. Hér er dauðarokkið --og afkimar þessu-- komið til vegs og virðingar.Til að ræða þetta, sögu hátíðarinnar og þau atriði sem eru á boðstólnum þetta árið, fengum við til okkar tvo eldhressa hátíðarstrumpa sem brenna fyrir málstaðinn, þá Ingólf Ólafsson og Stefán Friðriksson.Hátíðin fer fram 29. til 30. september á Gauknum.Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.
Sep 21, 2023
52 min
Load more