
Nýr þjálfari Þórs, Sigurður Heiðar Höskuldsson, mætti í ítarlegt spjall til Arons Elvars Finnssonar og Óðins Svans Óðinssonar. Siggi ræddi um fyrstu vikurnar í starfi, komandi undirbúningstímabil og tímabil og allt þar á milli. Virkilega skemmtilegt spjall við þennan skemmtilega karakter.
Nov 20, 2023
1 hr 27 min

Óðinn Svan og Aron Elvar fengu nýjan þjálfara meistaraflokks, Þorlák Árnason í ítarlegt spjall. Skylduhlustun fyrir alla Þórsara!
Mar 29, 2022

Nýr þjálfari Þórs, Orri Freyr Hjaltalín mætti í spjall til Arons og Jasons og ræddi allt milli himins og jarðar. Áhugavert viðtal við þennan skemmtilega karakter.
May 5, 2021
32 min

Baldvin og Jason fengu nýjasta atvinnumann okkar Þórsara, Jakob Franz Pálsson, til sín í viðtal og ræddu við hann um félagsskiptin og ýmislegt fleira.
Feb 6, 2021
21 min

Nýr þáttur af Þórs-podcastinu. Aron, Baldvin og Jason ræddu allt frá sumrinu 2020 yfir í sumarið 2021. Farið yfir öll helstu mál sem tengjast knattspyrnuliði Þórs. Mættir í nýja aðstöðu hjá Podcast stúdíói Akureyrar og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Endilega kíkið inn á psa.is.
Jan 13, 2021
46 min

Geir Guðmundsson „Ákvað að ég ætlaði að ná langt“ Handboltamaðurinn og Þórsarinn segir frá sínum ferli sínum til þessa í handboltanum í viðtali við Sæbjörn Þór. Hann var einnig frambærilegur í fótbolta. Geir ræðir valið á íþrótt, æfingaálag og áfallið að fá blóðtappa. Geir hefur leikið með Akureyri, Val og sem atvinnumaður í Frakklandi. Skyttan […]
Aug 24, 2020
1 hr 14 min

Sandra hefur nú leikið í eitt og hálft tímabil hjá Leverkusen og samdi undir lok síðustu leiktíðar um að vera áfram hjá félaginu. Sæbjörn Þór spjallar við Söndru um Leverkusen, atvinnumennskuna, landsliðið, breyttan lífstíl, framtíðarsýn, Þýskaland, Íslandsmeistaratitlana, Tékkland, sálfræðinámið og hvernig það hefur hjálpað. Sandra segir þá örlítið frá spennandi verkefni sem hún og bróðir […]
Jul 28, 2020
48 min

Hægri skyttan Hafþór fer yfir íþróttauppeldið í Þór, árið með ÍR, framtíðina með Stjörnunni og atvinnumannadrauma. Hafþór ræðir um áhrif Bjarna Fritzsonar, aukaæfingar, langa hvíld vegna meiðsla og jólafríið síðasta.
Jul 19, 2020
49 min

Júlíus Orri Ágústsson er einn allra efnilegasti körfuboltamaður sem við Íslendingar eigum. Júlíus lék upp alla yngri flokka Þórs og hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðunum. Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke ræddi við hann um ferilinn, Þór Akureyri og margt fleira. Birt með góðfúslegu leyfi körfunnar.
Jul 7, 2020
37 min

Stefán Karel Torfason var gríðarlega efnilegur körfuboltamaður, alinn upp í Þorpinu. Hann lék með yngri landsliðum og var farinn að spila reglulega í efstu deild þegar hann þurfti að leggja skónna á hilluna vegna höfuðhögga. Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke ræddi við Stefán um ferilinn og ýmislegt fleira. Birt með góðfúslegu leyfi Körfunnar.
Jul 7, 2020
21 min
