
Þórunn & Alexsandra fá til sín vinkonu Þórunnar hana Svandísi Sigurðardóttir. Ræða þær aðeins um endómetríósu sem þær Þórunn eru báðar með, ófrjósemi og ættleiðingarferlið sem Svandís og maður hennar fóru í gegnum. ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Mar 17, 2022
1 hr 38 min

Þórunn & Alexsandra fara aðeins yfir atburði seinustu vikna í þætti dagsins. Þær tala um sína upplifun og reynslu á að eiga börn með vara- og tunguhöft sem þurfti að klippa á, helstu einkenni þess og hvað breyttist eftir að var klippt á höftin. Nauðsynlegt er að bæta þjónustu þegar kemur að þessum þáttum hérlendis og grípa sem fyrst inn í til að koma í veg fyrir vandamál tengd brjóstagjöf, fæðuinntöku og tali barna.ÞOKAN er í boði Kiehl's, Bestseller og Nespresso.
Mar 8, 2022
1 hr 4 min

Þórunn & Alexsandra fá til sín góðan gest, hana Steinunni Jónsdóttur úr Reykjavíkurdætrum og Amabadama. Þær ræða um móðurhlutverkið, hversu mikilvægt það er að undirbúa börnin fyrir það að eignast nýtt systkini og tónlistarferilinn hennar Steinunnar ásamt þátttöku hennar með Reykjavíkurdætrum í Söngvakeppninni.ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Mar 1, 2022
1 hr 7 min

Þórunn & Alexsandra ræða aðeins um skipulag í þætti vikunnar og hvernig þeim finnst best að halda heimilinu skipulögðu og hreinu. ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso og Bestseller.
Feb 22, 2022
1 hr 3 min

Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Þórhildi sem heldur úti Instagram reikningnum Sundur og Saman. Þar deilir hún sinni reynslu og ráðum sem tengjast því að bæta sambönd sem byggir á jafningjagrundvelli. Þær ræða sambönd eftir barneignir, vinkonusambönd, opin sambönd og hvernig er hægt að rækta þau og bæta. Við lentum í smá vandræðum með hljóðið í þessum þætti svo við biðjumst afsökunar á því.ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nepsresso og Bestseller.
Feb 10, 2022
1 hr 14 min

Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur eftir nokkrar vikur af sóttkví og einangrun. Í þætti dagsins halda þær áfram þar sem frá var horfið eftir fæðingarsöguna hennar Lexu og ræða aðeins fyrstu dagana og batann eftir bráðakeisara.ÞOKAN er í boði Dr. Teal's, Bestseller og Nespresso.
Feb 1, 2022
55 min

Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur eftir smá pásu eftir að Þórunn og fjölskylda enduðu seinasta ár í einangrun. Þær fara yfir allt sem hefur gengið á seinustu vikur! ÞOKAN er í boði Bestseller og Nespresso.
Jan 10, 2022
57 min

*TW: Jólasveinatal og mjög dramatísk keisarafæðing*Lexan er mætt aftur eftir stutt fæðingarorlof og segir okkur fæðingarsöguna sína í þessum þætti Þokunnar sem er örlítið dramatísk, bara örlítið.ÞOKAN er í boði Bestseller og Fruitfunk.
Dec 14, 2021
1 hr 23 min

Þórunn fær til sín hana Gyðu Dröfn í þennan þátt af Þokunni á meðan Lexa er í barneignaleyfi. Þær vinkonurnar ræða sitt vinasamband og hvernig það hefur gengið að vinna saman seinustu ár. ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Dec 1, 2021
1 hr 16 min

Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur með léttan spjallþátt um allt og ekkert svona í tilefni þess að Lexan er komin heila þrjá daga framyfir, hverjum hefði grunað það? Það voru smá tæknilegir örðugleikar svo það gætu heyrst smá skruðningar fyrstu mínúturnar en svo lagast það.ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Nov 16, 2021
45 min
Load more
