Show notes
Nýr íþróttafulltrúi Þórs
Jón Stefán Jónsson, eða Jónsi eins og hann er jafnan kallaður, hefur tekið við starfi íþróttafulltrúa Þórs. Jónsi hóf knattspyrnuþjálfun hjá Þór árið 2003 og um tíma var hann yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Þá hefur Jónsi einnig starfað sem knattspyrnuþjálfari hjá Val og Haukum, auk Tindastóls þar sem hann er m.a. þjálfari meistaraflokks kvenna.

