Show notes
Þessi þáttur af Taktíkinni er tileinkaður sigursælasta íshokkíleikmanni landsins. Sigurður Sveinn Sigurðsson „Siggi Sig“ hefur unnið 21 Íslandsmeistaratitil á ferli sínum, 19 þeirra með Skautafélagi Akureyrar og tvo með Skautafélagi Reykjavíkur, fleiri en nokkur annar leikmaður í félagsliði á Íslandi í meistaraflokki karla.

