Show notes
„Íþróttir kenna okkur svo mikið á lífið og það er það sem ég segi við krakkana mína. Það verður ekkert allt auðvelt og fullt af erfiðleikum sem við eigum eftir að upplifa, en þið vitið að þið rúllið því upp ef að þið rúllið þessu upp í dag,“ sagði Ragnheiður Runólfsdóttir, yfirþjálfari hjá Sundfélaginu Óðni. En hún á að baki glæsilegan feril sem afreksíþróttakona í sundi, þar sem hún keppti meðal annars tvisvar sinnum á Ólympíuleikum og var valin Íþróttamaður ársins 1991, og var þá aðeins önnur konan til þess að hljóta þá nafnbót.

