Taktíkin
Taktíkin
N4
#12 Brynjar Þór Björnsson - Körfubolti
27 minutes Posted Aug 27, 2019 at 5:10 pm.
0:00
27:06
Download MP3
Show notes

„Það var komin einhver þreyta í hausinn á mér. Við vorum búnir að vinna allt og búnir að vera í öllu úrslitaleikjum síðastliðin 5 ár. Mér fannst vanta eitthvað,“ sagði Brynjar Þór Björnsson leikmaður Tindastóls í körfubolta. Hann hafði átta sinnum orðið íslandameistari í körfubolta með KR þegar að hann pakkaði saman og flutti ásamt fjölskyldunni á Sauðárkrók.

„Ég skil vel afhverju fólk ílengist. Maður er búinn að heyra marga segja, já ég ætla nú bara að búa hérna í hálft ár eða eitt ár og svo eru komin átta, tíu eða þrjátíu. Þannig að ég get alveg séð það gerast.“

„Það sem ég upplifði áður en ég mætti á Krókinn var bara KR hatur. Þótt við höfum ekkert endilega verið að mætast mikið í stórum leikjum þá fann maður að það var ekki hugsað hlýtt til okkar í Vesturbænum.“