Taktíkin
Taktíkin
N4
#11 Dagur Gautason leikmaður KA í handbolta, Harpa Jóhannsdóttir markmaður Hamranna og Sara Ómarsdóttir KvEnduro
28 minutes Posted Aug 27, 2019 at 5:09 pm.
0:00
28:00
Download MP3
Show notes

Dagur Gautason leikmaður KA í handbolta, Harpa Jóhannsdóttir markmaður Hamranna og Sara Ómarsdóttir KvEnduro eru gestir Skúla Braga í þessum þætti af Taktíkinni.

Dagur Gautason var valin í úrvalslið EM U-18 landsliða sem fór fram í Króatíu. Fáir leikmenn hafa afrekað slíkt og kemst Dagur þar í hóp með Ásgeiri Erni Hallgrímssyni, Arnóri Atlasyni, Aroni Pálmarssyni, Ólafi Guðmundssyni og Óðni Þór Ríkharðssyni. „Þetta kom náttúrlega strax eftir tapleikinn, það sat svolítið í manni. En jú það var að sjálfsögðu mikill heiður og mjög gaman,“ sagði Dagur en Ísland varð í 2. sæti á mótinu. Framtíðin er björt hjá þessum unga og efnilega leikmanni KA en hann var einnig nefndur á lista sem einn af 20 leikmönnum sem vert er að fylgjast með í heiminum.

„Frábær vettvangur fyrir unga leikmenn til þess að stíga upp og sanna sig,“ sagði Harpa Jóhannsdóttir markmaður Hamranna um sína upplifun af því að spila með liðinu. Hún var valin bæði besti leikmaður og leikmaður leikmannana á tímabilinu sem nú er nýlokið.

„Það geta flestir hjólað. Það læra allir að hjóla. Svo bara höldum við þegar að við verðum fullorðin að við eigum ekki að gera það. Svo kemur bara í ljós að þetta er ótrúlega skemmtilegt, að vera úti og læra þetta uppá nýtt. Ég er að sjá konur hoppa fram af gangstéttabrún í dag á hjólinu sínu, eitthvað sem þær hefðu aldrei gert fyrir þremur árum síðan,“ sagði Sara Ómarsdóttir stofnandi Fuck Cancer hjólreiðahópsins. Sara greinist mjög ung með brjóstakrabbamein, aðeins 34 ára gömul. „Þetta er áskorun, það er annaðhvort make it or break it, það er bara þannig. En ég er keppnismanneskja að eðlisfari.“