Taktíkin
Taktíkin
N4
#9 Akureyri Handboltafélag, Mfl kvenna hjá Tindastóli og Kraftlyftingaparið Karl Anton og Kara
28 minutes Posted Aug 27, 2019 at 5:08 pm.
0:00
28:48
Download MP3
Show notes

Sverre Jakobsson þjálfari Akureyrar Handboltafélags, Jón Stefán Jónsson þjálfari Mfl. kvenna hjá Tindastóli og Kraftlyftingaparið Kara Gautadóttir og Karl Anton Löve eru gestir Skúla Braga að þessu sinni í Taktíkinni.

Akureyri Handboltafélag eru nýliðar í Olísdeildinni. Eftir töp í þremur fyrstu leikjum tímabilsins kom smá pása. Hana nýttu Akureyringar vel og komu til baka tvíefldir og lögðu sterkt lið Aftureldingar. Sverre Jakobsson þjálfari Akureyrar Handboltafélags mætti í settið til að ræða gengi liðsins. „Það eru margir hérna sem hafa hreinlega aldrei spilað í efstu deild, við megum ekki gleyma því. Það er viss áskorun og þá er gríðarlega mikilvægt hlutverk okkar þjálfaranna að aðstoða menn og styða í því verkefni.“

„Sem íþróttamenn og sem manneskja þá bara viltu gera það vel sem þú gerir. Við bjuggum okkur til þennan kúltúr,“ sagði Jón Stefán Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli meðal annars.

Eitt sterkasta par Íslands mætti þá í settið, en þau Kara Gautadóttir og Karl Anton Löve náðu bæði í gullverðlaun á síðasta Norðurlandamóti í kraftlyftingum sem fór fram á Akureyri.