Aron Elí Gíslason markvörður, Gunnar Örvar Stefánsson leikmaður Magna og Andri Freyr frá Skákfélagi Akureyrar eru gestir Skúla Braga að þessu sinni í Taktíkinni.
„Þeir gerðu mikið grín af þessu strákarnir í landsliðinu. Spurðu mig og fannst þetta magnað. Því þeir eru náttúrlega margir hverjir atvinnumenn úti og ég þarna bara einhver sveitastrákur ný byrjaður að æfa. Þetta var dálítið fyndin stemning,“ sagði Aron Elí en það eru innan við tvö ár síðan hann byrjaði að æfa knattspyrnu. Þrátt fyrir það spilaði hann stórt hlutverk á nýliðnu tímabili með KA í Pepsideildinni og hefur fengið kallið í U-21 landsliðið. Allt viðtalið við Aron er nú komið á netið.
„Það var bara frekar einfalt. Það var bara að vinna leikinn! Það var ekkert mikið annað í stöðunni,“ sagði Gunnar Örvar Stefánsson markahæsti leikmaður Magna á tímabilinu um uppleggið í síðasta leik tímabilsins, þar sem Magni vann ÍR á útivelli í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi halda sæti sínu í Inkasso deildinni.
„Þú gætir borið það saman við að vera í stærðfræðiprófi í 4-5 klukkutíma,“ sagði Andri Fryer Björgvinsson hjá Skákfélagi Akureyrar aðspurður útí andlega þáttinn í skákíþróttinni.

