
Gestur þáttarins er?Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Silja Bára tók nýlega við starfi formanns Rauða Krossins á Íslandi. Rætt er við hana um starf Rauða krossins, hlutverk hans og verkefnin framundan. Í seinni hluta þáttarins verða bandarísk stjórnmál á dagskrá, nýleg ákvörðun Hæstarétts þar í landi um að fella úr gildi úrskurð dómstólsins um frelsi kvenna til þungunarrofs og komandi kosningar til Bandaríkjaþings í haust.
Jul 3, 2022
51 min

Gestur þáttarins er Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur og höfundur nýs rits um Hæstarétt Íslands í hundrað ár. Arnþór rekur ýmsa forvitnilega þætti í sögu Hæastaréttar í riti sínu en sennilega eru átök um störf og ráðningar í réttinn hvað áhugaverðasti hluti sögunnar. Rætt er við Arnþór um þessa hluti en einnig er snert á ýmsum öðrum deilum um Hæstarétt þessi hundrað sem oftast hafa snúist um sjálfstæði réttarins gagnvart framkvæmdavaldinu og hinu pólitíska sviði almennt.
Jun 26, 2022
51 min

Gestur þáttarins er?Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Rætt er við Vigdísi um hátíðina, hlutverk hennar, rekstur, dagskrá og framtíð.
Jun 5, 2022
50 min

Gestur þáttarins er Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Baldur hefur rannsakað samskipti smáríkisins Íslands við umheiminn um árabil og sendi nýlega frá sér bók um alþjóðasamskipti Íslands frá landnámi til lýðveldisstofnunar. Rætt er við Baldur um efni þessarar bókar en sjónum er einnig beint að samtíma okkar, breytingunum sem eru að eiga sér stað í alþjóðakerfinu með innrás Pútíns í Úkraínu og hugsanlegan sofandahátt í aðdraganda innrásarinnar.
May 29, 2022
52 min

Gestur þáttarins er Kjartan Atli Kjartansson, sjónvarpsmaður á Stöð tvö sport og körfuboltasérfræðingur. Úrslitakeppnin í körfubolta kvenna lauk um síðustu helgi með sigri Njarðvíkur og um þessa helgi hefst úrslitaeinvígi Tindastóls og Vals í karlaflokki en úrslitakeppnirnar hafa báðar vakið mikla athygli enda gríðarlega spennandi. Leikinn hefur verið glæsilegur körfubolti í þessum keppnum og raunar eru flestir sammála um að íslenskur körfubolti hafi tekið stórfelldum framförum á síðustu árum. Það sést ekki aðeins á leik félagsliðanna hér heima heldur einnig árangri landsliða okkar og einstakra leikmanna sem margir hverjir leika nú við sterkustu deildir Evrópu. Þessi uppgangur hefur svo endurspeglast í frábærri umfjöllun Kjartans Atla og félaga á Stöð tvö sport síðustu ár. Sú sjónvarpsstöð er einnig heimili NBA-körfuboltans hér á landi en þar stendur nú yfir úrslitakeppni í austur- og vesturdeild sem á undanförnum árum hefur sjaldan verið jafn spennandi og góð. Rætt er við Kjartan Atla um uppgang körfuboltans hér á landi, úrslitakeppnir hérlendis og vestanhafs, framfarirnar undanfarin ár, útrás íslenskra körfuboltamanna, spurninguna um fleiri eða færri erlenda leikmenn í íslensku deildinni, afreksstefnuna og síðast en ekki síst sjónvarpsþætti hans um íslenska körfuboltann sem vafalítið eiga þátt í þeim uppgangi sem orðið hefur í íþróttinni á síðustu árum.
May 8, 2022
50 min

Gestur þáttarins er Andri Snær Magnason, rithöfundur. Orkumál hafa verið til umræðu í þessum þætti á undanförnum vikum, spurningar um fleiri vatnsaflsvirkjanir hafa verið ræddar, sömuleiðis vangaveltur um aðra orkukosti eins og vindorku og kjarnasamruna. Talað hefur verið um að orkuskortur blasi við, ekki síst í ljósi nýrra markmiða um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 eða eftir átján ár. Það markmið virðist óraunhæft nema eitthvað mikið breytist í nýtingu þeirrar orku sem þegar er framleidd í landinu. Ef ekkert breytist í þeim efnum kallar kolefnishlutleysi á ríflega tvöföldun á orkuframleiðslu í landinu og ljóst er að slíkar framkvæmdir myndu kalla á harða umræðu um náttúruverndarsjónarmið en í síðasta þætti benti forstjóri Landsvirkjunar á að þau sjónarmið virtust takast á við loftlagssjónarmiðin og það markmið að ná kolefnishlutleysi á næstu áratugum. Rætt er við Andra Snæ Magnússon um þessa flóknu mynd sem virðist vera að teiknast upp í orku-, umhverfis- og loftslagsmálunum hér á landi.
Apr 25, 2022
51 min

Gestur þáttarins er Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Rætt er við Hörð um orkumál, hlutverk Landsvirkjunar, áskoranir sem tengjast virkjun vatnsafls, öðrum orkukostum og samþættingu náttúruverndar- og loftslagssjónarmiða í því tilliti.
Apr 11, 2022
50 min

Gestur þáttarins er Hallgrímur Helgason, rithöfundur. Hallgrímur hlaut fyrr í vetur íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir annað bindið í sögunni um Eilíf bónda, son hans Gest og fólkið í Segulfirði, Sextíu kíló af kjaftshöggum en hann fékk verðlaunin einnig fyrir fyrri bókina, Sextíu kíló af sólskini. Rætt er við Hallgrím um skrif hans og skáldskapinn almennt, hverju skiptir hann til dæmis nú þegar stríð geysar, hver eru viðhorf Hallgríms til skáldskaparins og hvernig hafa þau breyst í gegnum tíðina, og hvernig er sambúð rithöfundarins við myndlistarmanninn?
Apr 4, 2022
50 min

Gestur þáttarins er Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Á undanförnum vikum hafa orkumál verið rædd svolítið hér í þættinum og ætlunin er að halda því áfram enda hefur umræða um nýjar virkjanir verið sett á dagskrá af forstjóra Landsvirkjunar í kjölfar nýs stjórnarsáttmála sem kynntur var í desember. Rætt er við Auði um þá stöðu sem er komin upp í orkumálum, möguleikana á því að ná kolefnishlutleysi eftir átján ár, virkjunarkosti, aðra orkukosti, en sérstaklega náttúruverndar- og loftslagssjónarmið sem eiga líklega eftir að vega þungt í þeim ákvörðunum sem teknar verða á næstu misserum og árum.
Mar 28, 2022
50 min

Gestur þáttarins er Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri. Umræðan um orkumál, fleiri vatnsaflsvirkjanir og aðra orkukosti fór af stað með endurnýjuðum krafti í desember síðastliðnum eftir að nýr stjórnarsáttmáli var kynntur með því markmiði að Ísland myndi ná kolefnishlutleysi árið 2040 eða eftir 18 ár. Umræðan hefur síðan að miklu leyti snúist um orkuskort og mögulega virkjunarkosti til þess að bæta úr þeim skorti. Ég ætla að ræða við Höllu Hrund um þessa flóknu stöðu, möguleikana á því að ná kolefnishlutleysi eftir átján ár, virkjunarkosti, náttúruverndar- og loftslagssjónarmið sem og aðrar áskoranir og tækifæri í orkumálum þjóðarinnar.
Mar 21, 2022
50 min
Load more
