Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
RÚV
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu. Íslensk tónlist spilar stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur. Umsjón: Jón Ólafsson
Páll Ivan og Men At Work voru aðal.
Farið um hvipp og hvapp í músík og masi. Fyrsta plata Men At Work, Business As Usual, var tekin til kostanna og við kynntum fjöllistamanninum Páli Ivan frá Eiðum sem málar og músíserar í bland. Einnig komu við sögu fólk eins og Aretha Franklin, Ásta, Gus Gus og Ásgeir Trausti svo fáein dæmi séu nefnd.
Feb 18, 2024
1 hr 50 min
Gúmmelað á gúmmelað ofan
Tónlistin var fjölbreytt en meðal annars heyrðum við lag sem kallast Up The Ladder To The Roof í flutningi The Nylons sem skyldi ekki rugla saman við Nylon flokkinn íslenska. Upprunaleg útgáfa lagsins með Supremes fékk líka að heyrast, svona til samanburðar. Lög úr söngleiknum Gretti ómuðu og Aretha Franklin fór óblíðum en þó góðum höndum um Eleanor Rigby.
Feb 11, 2024
1 hr 50 min
Byltingarkennt áhrifatæki var kynnt til sögunnar og Nick Drake var í brennidepli
Sound Machine er lítið handhægt tæki sem notað var til áhrifaáauka með misheppnuðum árangri. Five Leaves Left, fyrsta plata Nick Drake, fékk ágætis umfjöllun og síðan voru það hinir ýmsu listamenn sem létu ljós sitt skína.
Feb 4, 2024
1 hr 50 min
Egill Ólafsson var maður þáttarins
Söngferill Egils Ólafssonar var rifjaður upp í tali og tónum. Í erlendu deildinni bar hæst innkomu Melanie Safka sem lést á dögunum. Svo var þarna eitt og annað sem gleður eins og Dido, Madness og Sharon King sem dæmi.
Jan 28, 2024
1 hr 50 min
Hey you x 4 og Aretha Franklin x 2
Hey you er algengur lagatitill og spiluð voru fjögur slík lög. Sálardrottningin Aretha Franklin lét til sín taka og ákveðið lag með Múgsefjun var spilað tvisvar í röð. Meðal annarra flytjenda má nefna Backstreet Boys, Pálma Gunnarsson og hljómsveitina Bachman Turner Overdrive frá Winnipeg.
Jan 21, 2024
1 hr 50 min
Plöturnar:  Dido & Valgerður Guðnadóttir
Meðal flytjenda má nefna Guðmund Andra Thorsson, Valdimar, Phoebe Snow og Violent Femmes. Fyrstu plötur Dido & Valgerðar Guðnadóttur voru aðeins teknar til kostanna. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-01-08 Del Rey, Lana - Take Me Home, Country Roads. VIOLENT FEMMES - Blister in the sun. Axel Flóvent - When the Sun Goes Down. FLOTT - Flott. Moses Hightower - Sjáum hvað setur. SKÚLI MENNSKI OG HLJÓMSVEITIN GRJÓT - Ball. VALDIMAR - Yfir borgina.
Jan 7, 2024
1 hr 50 min
Litið um öxl með ljúfum tónum
Minnst var nokkurra tónlistarmanna sem féllu frá á árinu auk þess sem eitt og annað forvitnilegt og fallegt var leikið.
Dec 31, 2023
1 hr 55 min
Platan:  Fyrsta plata Simon & Garfunkel
Allskonar og ekkert, út og suður, norður og niður. Jól og ekki!
Dec 17, 2023
3 hr 17 min
Plöturnar: Geispar & Ringo
Skrugguskemmtilegt sko!
Dec 10, 2023
1 hr 50 min