Stjórnsýsla Íslands í mínum augum
Stjórnsýsla Íslands í mínum augum
Útvarp Saga
Almenn umræða um stjórnsýsluna á Íslandi og hvað betur mætti fara.
Stjórnsýsla og neytendamál
Stjórnsýsla og neytendamál í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar en hann ræðir við Breka Karlsson frá Neytendasamtökunum um vaxtamálið en Neytendasamtökin hafa stefnt stóru bönkunum þremur fyrir EFTA dómstólinn í Lúxemborg til ógildingar skilmála bankanna og endurgreiðslu ofgreiddra vaxta til fjölda ára. Þetta gera Neytendasamtökin til að fá niðurstöðu og fordæmi fyrir önnur lán með breytilegum vöxtum en samtökin telja skilmála velflestra lána með breytilegum vöxtum vera ólöglega. Þeir munu ræða um Cretditinfo eða Lánstraust, persónuvernd, fjármálalæsi og væntanlega eitthvað fleira áhugavert og upplýsandi.
Jul 11, 2023
51 min
Eru stjórnmálamenn fulltrúar eða umboðsmenn almennings?
Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við þá Arngrím Pálmason og Halldór Sigurþórsson um fundi vikunnar, forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, Helliheiðavirkjun, fund með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur ráðherra og spurðu þá hvort þeir gerðu greinarmun á hvort stjórnmálamenn væru fulltrúar fólksins eða umboðsmenn fólksins.
Apr 18, 2023
57 min
Áhyggjur af rafrænum undirritunum og samskiptum
Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við þá Arngrím Pálmason og Halldór Sigurþórsson um rafrænar undirskriftir og samskipti, sýslumenn og innheimtur á niðurfelldum skuldum eftir hrun.
Apr 11, 2023
56 min
Bókun 35 við ESS-samninginn, synjunarvald forseta og skipunarbréf dómara
Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við þá Arngrím Pálmason og Halldór Sigurþórsson um fundi sem þeir sóttu í liðinni viku, bókun 35 við ESS-samninginn, synjunarvald forseta og skipunarbréf dómara.
Apr 4, 2023
1 hr 2 min
Fundir vikunnar - háir vextir - sýslumenn og nauðungarsölur
Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við þá Arngrím Pálmason og Halldór Sigurþórsson um fundi vikunnar hjá þeim, framtíðarsýn þeirra vegna hárra vaxta og það sem virðist blasa við í íslensku samfélagi - að það styttist í nauðungarsölur sýlumanna.
Mar 28, 2023
1 hr
Bankastjóri Landsbankans - vinsamlega hringdu í Arngrím strax!
Í þættinum ræddi Kristján Örn Elíasson við þá Arngrím Pálmason og Halldór Sigurþórsson. Eins og í fyrri þáttum er farið um víðan völl og ræddu þeir félagar m.a. um umboðsmann Alþingis, forseta Alþingis og þaulsetu sama fólks á alþingi áratugum saman. Arngrímur krafðist að Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans hringdi í sig án tafar og "ekki seinna en strax"!
Mar 21, 2023
58 min
Hringferð með Halldóri og Arngrími um stjórnsýslukerfið
Í þessum þætti koma þeir Arngrímur Pálmason og Halldór Sigurþórsson víða við í "hringferð" sinni um stjórnsýslukerfið á Íslandi. Þeir ræða um kæru vegna Alþingiskosninganna 2013 sem þeir lögðu fram hjá 10 stofnunum, opinn fund með Brynjari Níelssyni í Valhöll þeirra Sjálfstæðismanna um síðustu helgi, lesa í niðurstöður tveggja skoðanakannana Útvarps Sögu frá sl. tveimur helgum og segja óánægju margra um þessar mundir tengast afskiptalausri spillingu Íslandi.
Feb 28, 2023
1 hr 2 min
Arngrímur skellir hurðum!
Í þættinum í dag færðist hiti í mannskapinn og yfirgaf Arngrímur þáttinn þegar Halldór var í miðri "söguskýringu" sinni á upphafi verðtryggingarinnar á Íslandi. Eftir smá kælingu kom Arngrímur aftur inn í þáttinn og hélt áfram að tjá sig eins og ekkert hefði í skorist. Greinilegt er að  Arngrímur er búinn að fá sig fullsaddan af áhuga- og getuleysi stjórnvalda til að taka á þeim málum sem ber hæst í umræðunni í þjóðfélaginu í dag, spillingunni og að hans mál séu enn óleyst eftir persónulegar umkvartanir hans til stjórnmálamanna í 13 ár stanslaust.
Feb 28, 2023
58 min
Load more