Spilastund
Spilastund
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
Hlaðvarp um spunaspil. Fjallað verður um spunaspil í sinni víðustu mynd og þau skoðuð frá mismunandi sjónarhornum, kerfi rædd, heimar gaumgæddir og aðferðir við spilun og stjórnun rýndar. Stjórnandi: Þorsteinn Mar
Hliðvarsla í spunaspilum
Allt frá árdögum spunaspila hafa leikjahönnuðir, útgáfur og spunaspilarar ástundað hliðvörslu og reynt að gæta þess hverjir fái að taka þátt í þessu skemmtilega áhugamáli. VIð erum hins vegar orðin meðvitaðari í dag um hvað er fólgið í slíkri hliðvörslu og útgáfur hafa einnig lagt sitt af mörkum til að fá fleiri að spilaborðinu.  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 
Jun 8, 2022
29 min
Star Wars spunaspil
Í þessum þætti er fjallað um sögu Star Wars spunaspila og rýnt stuttlega í hin ólíku kerfi sem notuð hafa verið í gegnum tíðina til að endurspegla þann heim, allt frá því að fyrsta Star Wars spunaspilið kom fram til prufuútgáfa sem finna má á netinu í dag.  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 
Jun 5, 2022
29 min
Ævintýragerð og frásagnartækni
Það getur verið gott fyrir stjórnendur að þekkja helstu formgerðir ævintýra sem og kunna skil á nokkrum þáttum góðrar frásagnartækni. Hvað einkennir frásagnir spunaspila og hvernig er frásagnartækni þeirra ólík hefðbundinni frásagnartækni bókmennta?  Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber. 
Apr 30, 2022
34 min
Askur Yggdrasils
Askur Yggdrasils er eina spunaspilið sem hefur komið út á íslensku. Spilið var gefið úr árið 1994 af bókaforlaginu Iðunni og gert af þeim Rúnari Þór og Jóni Helga Þórarinssonum. Hér er fjallað um spunaspilið, kosti þess og galla, sögu og áhrif.  Bakgrunnstónlistin gerð af Cryo Chamber.
Apr 11, 2022
33 min
Saga spunaspila
Árið 1974 kom út fyrsta útgáfa af Dungeons & Dragons spunaspilinu út, en það var gefið út af fyrirtækinu TSR. Í kjölfarið fylgdu fleiri spunaspil, á borð við Runequest og Call of Cthulhu, og hafa vinsældir spunaspila aukist jafnt og þétt. Hins vegar hefur aðeins eitt íslenskt spunaspil verið gefið út, en það heitir Askur Yggdrasils. Bakgrunnstónlist unnin af Cryo Chamber.
Mar 24, 2022
35 min