Spegillinn
Spegillinn
RÚV
Bændur taka afstöðu til ESB-aðildar á aukabúnaðarþingi, hitabylgja og Austlendingum finnst sér naumt skammtað
20 minutes Posted Jun 23, 2026 at 6:10 pm.
0:00
20:00
Download MP3
Show notes
Á aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra.
Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga.
Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni.