Spegillinn
Spegillinn
RÚV
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Afstaðan til flóttafólks og staðan í Grindavík
Árið 2023 var tólfta árið í röð sem flóttafólki í heiminum fjölgaði. Hartnær 120 milljón manns voru á flótta í fyrra, þar af um 47 milljónir barna undir 18 ára aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í gær, á alþjóðlegum degi flóttafólks, kynnti Flóttamannastofnunin niðurstöður alþjóðlegrar könnunar, þar sem ríflega 33 þúsund manns í 52 löndum víðsvegar um heiminn voru beðin að taka afstöðu til fjölmargra atriða varðandi fólk á flótta. Ein meginniðurstaða könnunarinnar var sú, að nær þrír af hverjum fjórum þátttakendum, 73 prósent, voru sammála þeirri fullyrðingu að fólk á flótta undan stríðsátökum og ofsóknum eigi að geta leitað skjóls í öðrum löndum, þar á meðal í heimalandi svaranda. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Nínu Helgadóttur hjá Rauða krossinum. Í þættinum er einnig rætt við Pétur Hafstein Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis, um stöðuna í Grindavík og af hverju hann er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir stöðuna í dag.
Jun 21, 2024
20 min
Vantraust á matvælaráðherra, deilur í ESB og friðlýsingar og ágangur á ferðamannastöðum
Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum brot úr málflutningi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Jóns Gunnarssonar. Flokkadrættir og átök á Evrópuþinginu eftir kosningarnar um síðustu mánaðarmót draga dilk á eftir sér - ekki síst í hinum hefðbundna stólaleik um mikilvægustu embættin hjá Evrópusambandinu. Björn Malmquist talar frá Brussel. Áfangastaðir ferðamanna, sérstaklega inni á hálendinu, eru viðkvæmir fyrir ágangi í byrjun sumars og svo getur veðrið sett babb í bátinn. Í síðustu viku þurfti að loka að Dettifossi vegna þess hve mikil bleyta og krapi var á göngustígum. Þeir gátu verið varasamir en það var líka hætt við að svæðið træðist niður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir viðIngu Dóru Hrólfsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, um friðlýsingar, ástand og heildarstefnu um friðlýsta ferðamannastaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Jun 20, 2024
20 min
Rannsókn á rútuslysi, mýtur um mansal og spænskum gersemum skilað
Nokkrir úr hópi tékkneskra ferðalanga sem lentu í alvarlegu bílslysi í Öxnadal í síðustu viku hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi, en tveir eru enn á gjörgæslu. Bílstjórinn hefur réttarstöðu sakbornings, umfangsmikil rannsókn er þó skammt á veg komin. Hlekkirnir þurfa ekki að vera áþreifanlegar til að það sé mansal, segir sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust, og mansal þrífst ekki aðeins hjá skipulögðum brotahópum. Erfingjar rúmlega fimm þúsund listmuna og gersema sem stjórnvöld á Spáni gerðu upptæk á tímum borgarastyrjaldarinnar á síðustu öld geta loks fengið þá aftur.
Jun 19, 2024
20 min
Vantrauststillaga, mansalsmál, umdeild umhverfislöggjöf
Vantrauststillaga í garð matvælaráðherra. Rætt við þingflokksformann Miðflokksins Bergþór Ólason og þingflokksformann Framsóknarflokksins Ingibjörgu Isaksen. Af hverju gengur svona illa að sakfella í mansalsmálum? Rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara. Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur staðfest viðamikla og umdeilda löggjöf um endurheimt lífríkis, vistkerfa og náttúru eftir harðar deilur og átök.
Jun 18, 2024
20 min
Þjóðerniskennd á lýðveldisafmælinu, öryggisgæslan á EM og sendiherrabústaður fær grænt ljós
Fyrir áttatíu árum þegar lýðveldið var stofnað og valinn forseta í staðinn fyrir kóng var ekki bara verið að setja lokapunktinn á sambandið við Dani en þá voru líka mikilvæg tímamót í lýðræðislegri þróun landsins. Þjóðerniskennd getur verið jákvæð en víða er höfðað til hennar til að ala á sundrungu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing. Þýskaland og Skotlands mætast í opnunarleik Evrópumótsins í knattspyrnu. Mótið er haldið í Þýskalandi og öryggisgæslan er gríðarleg. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umhverfis-og skipulagsráð Reykjavíkurborgar féllst í vikunni á umdeildar breytingar sem sendiráð Bandaríkjanna vill gera á Sólvallagötu 14. Sjötíu og níu umsagnir bárust um breytingarnar, flestar frá íbúum sem lýstu furðu sinni á að sendiherra stórveldis ætlaði að flytja í gróið hverfi með tilheyrandi umstangi. Skipulagsfulltrúi segir alla sitja við sama borð.
Jun 14, 2024
20 min
Þingveturinn með Jóhanni Páli og Bryndísi og nýtt skipulag rjúpnaveiða
Í þættinum verður farið yfir þingveturinn sem á að vera ljúka en óvist er hvenær það verður. Stjórnarandstaðan hvessti sig við upphaf þingfundar í morgun og húðskammaði stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin segir mikilvæg mál verða sett á oddinn; fjármálaáætlun og útlendingamál þar efst á baugi. Í þættinum verður einnig sagt frá nýju skipulagi við rjúpnaveiðar sem sátt virðist ríkja um.
Jun 13, 2024
20 min
Hvalveiðar og þingkosningar í Frakklandi
12. júní 2024 Forstjóri Hvals hf sagðist í morgun vera efins um að fyrirtækið myndi veiða hval á þessari vertíð vegna seinagangs matvælaráðherra. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur orð forstjórans vera viðbrögð við minni eftirspurn á Japansmarkaði og Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir Hval hafa nægan tíma til stefnu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þá. Innan við þrír sólarhringar eru liðnir frá því Emmanuel Macron, forseti Frakklands, boðaði óvænt til þingkosninga sem hefjast um næstu mánaðarmót, og kosningabaráttan, með alls kyns vendingum og átökum franskra stjórnmálaflokka - er komin í fullan gang. Macron kom fram á blaðamannafundi í morgun, þar sem hann hvatti lýðræðissinnaða flokka til að sameinast gegn því sem hann kallaði öfgaöfl, og skömmu síðar ákvað stjórn Repúblikanaflokksins að sparka sitjandi forseta flokksins, eftir að hann vildi ganga til samstarfs við Þjóðfylkingu Marine Le Pen. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Jun 12, 2024
20 min
Vonast eftir vopnahléi, ekkert grín að veiða langreyði, staða drengja í skólum
Enginn virðist ánægður með ákvörðun um að heimila hvalveiðar í ár. Matvælaráðherra ákvað í dag að heimila veiðar í ár. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur segir að það sé ekkert grín að veiða dýr sem er fjörutíu tonn og tuttugu metrar að lengd. Þjóðarleiðtogar og alþjóðasamtök fagna ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að Ísraelar og Hamas skuli semja um vopnahlé á grundvelli samkomulags sem Bandaríkin lögðu fram. Vonir standa til að svo fari, en formlegt samkomulag er þó ekki í höfn. Tillögur til úrbóta í skýrslu um stöðu drengja í menntakerfinu eru um margt ágætar en skýrslan sjálf er nokkuð sundurlaus og tilviljanakennd segir fyrrverandi prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Jun 11, 2024
20 min
Kosningar til Evrópuþings og akstur undir áhrifum slævandi lyfja
Rúmlega helmingur af þeim 360 milljónum Evrópusambandsbúa sem voru á kjörskrá neyttu atkvæðisréttar síns og kusu í Evrópuþingskosningunum. Helsta niðurstaðan er sú að flokkar sem skipa sér nálægt miðju og til hægri við hana fengu mest fylgi en þjóðernissinnaðir hægriflokkar styrktu stöðu sína, mest í Frakklandi þar sem flokkur forsætisráðherrans galt afhroð. Hann hefur boðað til þingkosninga eftir nokkrar vikur og þykir djarflega teflt. 44% fleiri ökumenn voru stöðvaðir í fyrra en árið á undan vegna gruns um að vera undir áhrifum örvandi eða deyfandi lyfja. Þetta sýna tölur sem ríkislögreglustjóri tók saman fyrir Spegilinn. Á meðan hefur fjöldi þeirra sem teknir eru undir áhrifum ávana- og fíkniefna nánast staðið í stað - tölurnar eru samt sem áður ískyggilega háar - nærri sautján hundruð á síðasta ári. Ríkissaksóknari flytur á næstu dögum mál fyrir Hæstarétti þar sem tekist verður á um harðari refsingar fyrir akstur undir áhrifum slævandi lyfja.
Jun 10, 2024
20 min
Strákar í skóla, ketamín og verkföllin í Færeyjum
Fyrir tveimur árum hófst vinna í barna- og menntamálaráðuneytinu til að finna leiðir til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Stöðu sem er um margt alvarleg og getur enn versnað, eins og fram kom í máli Tryggva Hjaltasonar höfundar úttektar og skýrslu sem kynnt var í gær og fjallað um í Speglinum. Þar voru lagðar til fjölmargar aðgerðir og lausnir til að sporna við því að námsárangri drengja hraki og brottfalli þeirra úr námi. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við formanna Kennarasambands Íslands. Notkun ketamíns hefur aukist í Evrópu og efnið fannst við rannsókn á skólpi í fyrsta skipti í fyrra. Svipuð þróun virðist í gangi hér á landi, lagt hefur verið hald á mun meira af ketamíni síðustu tvö ár en árin þar á undan. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um ketamín. Verkföll í Færeyjum hafa nú staðið í rúmlega þrjár vikur og Halla Nolsøe Poulsen, fyrrverandi sendiherra Færeyja á Íslandi, segir færeyskan almenning vera farinn að finna vel fyrir afleiðingum þess. Ævar Örn Jósepsson segir frá.
Jun 7, 2024
20 min
Load more