Show notes
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé.Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna. Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði.Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar.

