Spegillinn
Spegillinn
RÚV
Breytt meðferð við brjóstakrabbameini, geðheilsu hrakar og bresk pólitík
20 minutes Posted Jun 1, 2026 at 6:10 pm.
0:00
20:00
Download MP3
Show notes
Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af.
Um 1.2 milljarðar Jarðarbúa, 1.200 milljónir karla, kvenna og barna, eru með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi. Það eru nær tvöfalt fleiri en 1990. Það þýðir að geðraskanir eru algengasta heilbrigðisvandamál samtímans. Þetta er meginniðurstaða viðamikillar rannsóknar sem birt var í læknatímaritinu Lancet á dögunum.
Bresk stjórnvöld birtu í dag skjöl í þremur bindum upp á um fimmtán hundruð síður með samskiptum sem tengjast sendiherratíð Peters Mandelsonsa í Bandaríkjunum. Ýmislegt í skjölunum er talið koma illa við Keir Starmer sem þegar sætir mikilli gagnrýni vegna skipunar Mandelsons.