Spegillinn
Spegillinn
RÚV
Strákar í skóla, ketamín og verkföllin í Færeyjum
20 minutes Posted Jun 7, 2024 at 6:10 pm.
0:00
20:00
Download MP3
Show notes
Fyrir tveimur árum hófst vinna í barna- og menntamálaráðuneytinu til að finna leiðir til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Stöðu sem er um margt alvarleg og getur enn versnað, eins og fram kom í máli Tryggva Hjaltasonar höfundar úttektar og skýrslu sem kynnt var í gær og fjallað um í Speglinum. Þar voru lagðar til fjölmargar aðgerðir og lausnir til að sporna við því að námsárangri drengja hraki og brottfalli þeirra úr námi. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við formanna Kennarasambands Íslands.
Notkun ketamíns hefur aukist í Evrópu og efnið fannst við rannsókn á skólpi í fyrsta skipti í fyrra. Svipuð þróun virðist í gangi hér á landi, lagt hefur verið hald á mun meira af ketamíni síðustu tvö ár en árin þar á undan. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um ketamín.
Verkföll í Færeyjum hafa nú staðið í rúmlega þrjár vikur og Halla Nolsøe Poulsen, fyrrverandi sendiherra Færeyja á Íslandi, segir færeyskan almenning vera farinn að finna vel fyrir afleiðingum þess. Ævar Örn Jósepsson segir frá.