Show notes
Leiðtogaráð Evrópusambandsins ákvað undir kvöld að bjóða Úkraínu og Moldóvu að hefja viðræður um aðild að sambandinu. Þetta var tilkynnt á fundi leiðtoganna sem nú stendur yfir í Brussel. Fyrirfram hafði verið búist við að Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands myndi standa í vegi fyrir þessari ákvörðun. Rætt var við Björn Malmquist sem hefur fylgst með fundinum. Danska lögreglan telur sig hafa komið í veg fyrir hryðjuverkaárás með umfangsmiklum aðgerðum víða um landið í rauðabítið í morgun. Þrír eru í haldi í Danmörku og einn í Hollandi.Notkun Strætó utan höfuðborgarinnar minnkaði um tæpan helming í heimsfaraldrinum og hefur gengið erfiðlega að fjölga farþegum síðan. Framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar segist þó vongóð, þar sem þau sjái hægan vöxt milli ára.Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.

