Show notes
22. nóvember 2023Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr neyslu almennings og haft vond áhrif á ferðaþjónustu. Óvissan sé mikil og því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Læknar á landsbyggðinni lýsa margir miklu álagi og víða reynist erfitt að manna stöður. Formaður Læknafélagsins segir tímabært að stjórnvöld geri alvöru úr stefnu sinni að bæta heilbrigðisþjónustu utan borgarinnar.Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur MarðarsonViðmælendur:Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.Frank Gardner,fyrrverandi yfirmaður í breska hernum og nú fréttamaður hjá BBC.Peter Lerner, talsmaður Ísraelshers.Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri.Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands.

