Show notes
Það getur verið dýrkeypt að gera ekki samaburð á þeim kjörum sem bjóðast við endurfjármögnun á húsnæðislánum, segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Fólk þarf að vera meðvitað um hve ódýrt það er að endurfjármaga lánin.Of hár blóðþrýstingur er vangreindur og vanmeðhöndlaður sjúkdómur sem getur leitt til nýrna-, hjarta- og heilasjúkdómum, segir Emil Lárus Sigurðsson prófessor við Háskóla Íslands.Mikill munur er á áhrifum kláms á ungmenni eftir því hvort þau leita að því sjálf eða ekki, segir Guðbjörg Hildur Kolbeins, dósents í fjölmiðlafræði.Stórir evrópskir bankar hagnast enn á fjármögnun og rekstri jarðefnaeldsneytisfyrirtækja, þvert á eigin loftslagsmarkmið.Áformað er að 10.000 manna, þétt og ?grænt" hverfi rísi í landi Keldna í Reykjavík.Kvennalið Íslands í fótbolta tapaði fyrir þýska landsliðinu með engu marki gegn fjórum.-----Loftslagsþolið Ísland er yfirskriftin á skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og birt var í dag. Skýrslan inniheldur tillögur stýrihóps á vegum ráðuneytisins fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Rætt er við Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem á sæti í stýrihópnum og er yfir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands.Það verður að stokka upp framhaldsskólakerfið, auka samstarf eða samvinnu á milli skóla segir Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra. Elsa Eiríksdóttir dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands segir það vel geta verið til bóta að sameina skóla, en að vanda verði til verka.

