Show notes
Spegillinn 23. ágúst 2023Umsjónarmaður: Ævar Örn JósepssonTæknimaður: Mark EldredStjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.Fjöldi fólks kom saman á fundi sem á þriðja tug hjálpar- og mannréttindasamtaka boðaði til vegna aðstæðna hælisleitenda sem sviptir hafa verið allri þjónustu. Valur Grettisson fór á fundinn og ræddi við Arndísi Önnu Kristínar-Gunnarsdóttur, þingmann Pírata.Yevgeny Prigozhin, stofnandi og leiðtogi hins svokallaða Wagner-málaliðahóps, var á farþegaskrá flugvélar sem fórst skammt frá Moskvu síðdegis.Leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Hann verður ekki valinn næsta landsliðshóp.Rætt er við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ.Norskur fiskeldisrisi hefur verið sektaður vegna mikils fiskidauða og fjölda sárra fiska í kvíum þess.Fyrsta indverska loftfarið lenti á tunglinu í dag.Rolling Stones virðast ætla að gefa út sína 31. breiðskífu í september, flestum að óvörum.---Ítrekaðar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans hafa hægt á hagkerfinu, að dómi forseta viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Fleira þurfi að koma til ef koma á böndum á verðbólguna og þar skipti ríkisfjármálin kannski mestu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Þór Sturluson.Margt er vel gert í almenningssamgöngum á Íslandi en margt má líka bæta. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Daða Baldur Ottósson samgönguverkfræðing.Yfirvöld í Hong Kong ætla frá og með morgundeginum að banna innflutning á sjávarafurðum frá tíu héruðum í Japan vegna ákvörðunar japanskra stjórnvalda um að sleppa geislavirku kælivatni frá Daiichi kjarnorkuverinu í Fukushima út í sjó. Ásgeir Tómasson segir frá.

