Sögur af plötum
Sögur af plötum
Hlaðvarp Fréttablaðsins
Bubbi Morthens fer yfir sögurnar af þeim plötum sem hann hefur gefið út og fær til sín góða gesti.
Rjúpurnar sprungu í bakpokanum
Í þætti vikunnar rýnir Bubbi í plötuna Dögun. Hann fer meðal annars yfir kvennamál sín, vandamálin hjá Tomma, innblásturinn að baki Aldrei fór ég suður og einstaklega óheppilega veiðiferð. Þátturinn er framleiddur í samstarfi við Hagkaup.
Sep 6, 2019
54 min
Frágangurinn til fyrirmyndar
Í þætti vikunnar tekur Bubbi fyrir plötuna Frelsi til sölu. Hann segir frá kynnum sínum af hljómsveitinni Imperiet og upptökustjóranum Christian Falk sem færði tilraunakennda plötuna upp á annað stig.
Aug 26, 2019
52 min
Pissað út um gluggann
Í þætti vikunnar fer Bubbi yfir söguna á bak við plötuna Kona. Hann rifjar upp söguna af því þegar hann fór í meðferð, fráhvarfseinkenni frá lagasmíðum, konuna sem titillag plötunnar vísar í og eftirminnilega næturgistingu. Þátturinn er unninn í samstarfi við Hagkaup.
Aug 11, 2019
45 min
Reykspólandi á hjólastólnum
Í þætti vikunnar rýnir Bubbi í plötuna Fingraför. Meðal annars rifjar hann um innblástur frá bandarískri þjóðlagatónlist, gríðarlega umtalað plötuumslagið, tíðarandann í kringum lagið Fatlafól og hvernig hann samdi lagið Paranoia í annarlegu ástandi á aðfangadag.
Aug 2, 2019
55 min
Horfinn inn í úlpuna
Bubbi fer yfir sögu sveitarinnar Egó, skrautlega gítarleikaraumsækjendur, tortryggna skólastjóra og vanmetin og vel metin lög. Þátturinn er framleiddur í samstarfi við Hagkaup.
Jul 26, 2019
1 hr 5 min
Er líf fyrir dauðann?
Plágan er tekin fyrir í þætti vikunnar. Bubbi rekur söguna af því hvernig hann tók því að vera rekinn úr Utangarðsmönnum, áhrifin sem hann varð fyrir í aðdraganda plötunnar og samstarf sitt og vináttu við bassaleikarann Tomma Tomm. Þátturinn er unninn í samstarfi við Hagkaup.
Jul 19, 2019
39 min
Ber með rjóma
Gestur Bubba í fjórða þætti af Sögur af plötum er bassaleikarinn Jakob Magnússon. Saman fara þeir yfir skrautlega söguna á bak við sveitina Das Kapital. Þátturinn er framleiddur í samstarfi við Hagkaup.
Jul 12, 2019
1 hr
Eins og skriðdreki hafi keyrt yfir fólkið
Bubbi rekur söguna í kringum aðra plötu sína með Utangarðsmönnum, Geislavirkir. Í þættinum fer hann meðal annars yfir vesenið með að finna staði til að halda tónleika og skrautleg gigg í Ártúni og á Hótel Borg, uppáhaldslögin sín af plötunni og hvernig upptökumaður plötunnar átti hlut í að eyðileggja hana. Þátturinn er unninn í samstarfi við Hagkaup.
Jul 5, 2019
50 min
Alltaf góður fílingur, alltaf nóg af grasi
Bubbi heldur áfram upprifjun um tilurð fyrstu plötu sinnar, Ísbjarnarblús. Gestur þáttarins að þessu sinni er upptökumaður plötunnar, Sigurður Árnason. Þátturinn er unninn í samstarfi við Hagkaup.
Jun 28, 2019
36 min
Ísbjörninn og Bítlarnir
Í fyrsta þætti hlaðvarpsins Sögur af plötum rýnir Bubbi í sína fyrstu plötu, Ísbjarnarblús. Hann rekur söguna af því hvernig hann leiddist út í tónlist og lýsir aðdraganda plötunnar ásamt gesti sínum, gítarleikaranum Sigurgeiri Sigmundssyni. Þátturinn er framleiddur í samstarfi við Hagkaup.
Jun 22, 2019
55 min