Við fengum Hauk Óskarsson, framkvæmdastjóra Nesklúbbsins, í hörkuskemmtilegt spjall. Haukur komst í fréttirnar á dögunum þegar hann afrekaði það að leika alla golfvelli landsins á einu og sama árinu. Hann segir frá þessu magnaða ferðalagi og fer yfir það sem stóð upp úr á golfvöllum landsins.
Haukur rifjar einnig upp þegar hann fékk bolta í bringuna frá öðrum kylfingi og steinlá. Þá kom í ljós að Haukur hefur þrívegis fengið albatross, sem er ótrúlegt afrek.
Í þættinum segir Haukur okkur líka frá hinum víðfræga biðlista Nesklúbbsins, en nú bíða yfir 2.000 manns eftir aðild að þessum eftirsótta golfklúbbi. Hauki berast reglulega tilboð frá fólki sem vill kaupa sér leið fram fyrir á biðlistanum, og í sumar barst honum sjö stafa tilboð.
Meðal annars velur Haukur þær fimm par-3 holur þar sem hann væri helst til í að fara holu í höggi næst.
Virkilega skemmtilegur þáttur þar sem víða er komið við og hefði getað boðið upp á ótal fyrirsagnir!



