Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#134 - Örn valdi alls ekki draumahollið
1 hour 7 minutes Posted Oct 19, 2026 at 11:00 am.
0:00
1:07:58
Download MP3
Show notes

Við fengum hlaðvarpsstjörnu í heimsókn til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Örn Arnarson, fjölmiðlamaður og reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál, kom og fór yfir golfið með okkur.

Örn er Keflvíkingur og hóf golfiðkun ungur í Leirunni. Í dag er hann með rúmlega 16 í forgjöf. Hann óttast mest stutt vipp, hefur aldrei farið holu í höggi og er í golfhópnum Kvíði.

Örn valdi bæði draumahollið og hollið sem hann vildi alls ekki spila með á Glanna. Við fengum einnig mjög góða kraftröðun þar sem farið var yfir besta bitann að loknum golfhring.

Frábær þáttur og mikið hlegið að þessu sinni.