Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Reglugerð um ljósvist, sniðganga og áhrif streitu á krabbameinsfrumur
58 minutes Posted Jan 14, 2026 at 1:00 pm.
0:00
58:08
Download MP3
Show notes
Ljósvist er nú í fyrsta sinn skilgreind í byggingarreglugerð og settar fram kröfur um ásættanleg birtuskilyrði í nýbyggingum. Mannvirkjahönnuðir þurfa þannig að sjá til þess að dagsljós sé ásættanlegt í vistarverum fólks og að skuggavarp og byggingamagn nýrra hverfa hamli því ekki. Ásta Logadóttir verkfræðingur hefur talað fyrir þessum breytingum á reglugerðinni um langt skeið og við ræðum við hana í upphafi þáttar. Um miðbik þáttar setjumst við niður með Ragnhildi Hólmgeirsdóttur og Hólmfríði Jónsdóttur frá íslensku sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þær ætla að segja okkur frá stöðu sniðgönguhreyfingarinnar í dag, þremur mánuðum eftir að vopnahlé tók gildi á Gaza. Og Edda Olgudóttir sest hér hjá okkur í vísindaspjall í lok þáttar. Hún ætlar að segja okkur frá áhrifum streitu á krabbameinsfrumur. Tónlist úr þættinum: Lisa Ekdahl - Vem vet. Khruangbin - People Everywhere (Still Alive).