Show notes
Surtseyjarfélagið gaf nýverið út ritið Surtsey Research í sextánda sinn. Ritið er safn vísindagreina um eyna, jarðfræði hennar og lífríki. Tíu manna handvalinn hópur heimsækir Surtsey í júlí ár hvert og sinnir þar rannsóknum sem síðar rata í ritið. Í þætti dagsins spjöllum við við Hólmfríði Sigurðardóttur formann Surtseyjarfélagsins og Bjarna Diðrik Sigurðsson ritstjóra Surtsey Research og gjaldkera félagsins. Og í lok þáttar ræðir Páll Líndal vellíðan og farsældarhyggju í sínum reglubundna pistli. En við byrjum á Surtseyjarrannsóknum.

