Rokkland
Rokkland
RÚV
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Laufey - lífið, listin og Grammy verðlaunin
Rokkland í dag er að mestu helgað Laufey Lin Jónsdóttur sem hefur slegið í gegn um allan heim á eigin forsendum og að mestu heiman frá sér. Hún hlaut Grammy verðlaun sunnudaginn fyrir viku í flokknum Best Traditional Pop Vocal Album. Þau sem hafa hlotið þessi sömu verðlaun er fólk eins og Tony Bennet, Frank Sinatra, Joni Mitchell, Rod Stewart og Paul McCartney. Laufey ólst upp í Reykjavík og Washington DC. Hún fór í Versló og þaðan til Berkeley school of music í Boston á skólastyrk. Hún útskrifaðist á netinu í Covid og sló svo í gegn á netinu með myndböndum sem hún póstaði á samfélagsmiðla. Hún býr í Los Angeles en er á leiðinni til Íslands til að spila þrjú kvöld í röð í Eldborg í mars, en þeir tónleikar eru liður í hátt í 100 tónleika-túr um Bandaríkin og Evrópu. Halla Harðardóttir spjallaði við Laufey í desember fyrir þáttinn Undir álögum sem var á dagskrá Rásar 1 um jólin. Rokkland fékk góðfúslegt leyfi til að nota brot úr því viðtali í þátt vikunnar dagsins. Joni Mitchell og fyrstu Grammy verðlaunin (1959) koma líka við sögu í dag.
Feb 11, 2024
1 hr 51 min
Patri!k og Dundur
Í Rokklandi dagsins eru í aðalhlutverki tveir ólíkir tónlistarmenn: Dundur (Guðmundur Höskuldsson) frá Neskaupsstað sem sendi frá sér plötuna Tilvera síðasta haust, intrumental-plata þar sem gítar og Hammond-orgel eru í aðalhlutverki, og svo Patri!k (Prettyboitjokko) frá Hafnarfirði sem heldur betur kom, sá og sigraði á árinu sem leið.
Feb 4, 2024
1 hr 52 min
Vévaki og Lón á Eurosonic
Hljómsveitirnar Lón og Vévaki eru tvær af fjórum nöfnum frá íslandi sem spiluðu á Eurosonic festival í Hollandi um miðjan janúar. Rokkland var á svæðinu og ræddi við báðar sveitir. Lón er tríó þar sem Valdimar Guðmundsson syngur á ensku aðalega og Vévaki er kvartett sem syngur forn kvæði og ný í fornum stíl. Meðlimir sveitarinnar eru heiðin og færa blót í tónlistarform með tónlist sinni.
Jan 28, 2024
1 hr 49 min
Bestur plötur ársins 2023?
Í Rokklandi vikunnar heyrum við lög af ýmsum plötum sem bresku músíkblöðin Mojo og Uncut segja að séu bestu plötur ársins 2023.
Jan 21, 2024
1 hr 49 min
Brot frá 2023
Ég ætla í þessum fyrsta Rokklandsþætti nýs árs rifjum við upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum ársins 2023. Við heyrum í Nönnu úr OMAM, Emiliönu Torrini, Bubba, Isafjord, Kvikindi, Eyjólfi Kristjánssyni, Heidrik frá Færeyjum, Alonu frá Úkraínu, Sinéad O´Connor., Elvis Costello, Jeff Beck ofl. Yardbirds / Heart full of soul Jeff Beck / Midnight Walker Jeff Beck / Beck´s Bolero Jeff Beck / Over the rainbow Isafjord / falin skemmd Isafjord / hjartastjaki Eyjólfur Kristjánsson / Ástarljóð á vetrarbraut Bergþóra Árnadóttir / Verkamaður Kvikindi / Ungfrú Ísland Kvikindi / Efst á messenger Heidrik / Immature Heidrik / Oceania Emiliana Torrini / Wedding song Emiliana Torrini / racing the storm Utangarðsmenn / Hiroshima John Lennon / Imagine Kalush Orchestra / Stefania Jamala / 1944 Sasha Bole / 3i Nanna / How to start a garden Nanna / The vine Elvis Costello / Magnificent hurt Elvis Costello / What´s so funny about peace, love and understanding Sinéad O?Connor / Nothing compares 2 U Sinéad O?Connor / This is a rebel song Elín Hall / HE I M Elín Hall / Vinir
Jan 7, 2024
1 hr 54 min
Purrkur Pillnikk - Orð fyrir dauða og jól
Senn líður að jólum og í dag er síðasta Rokkland fyrir jól. Það verður smá jólastemning í seinni hlutanum, en í fyrri hlutanum er það Purrkur Pillnikk í tilefni af því að það var að koma út RISA-vinyl-plötukassi/pakki með Purrki Pillnikk. Pakkinn ber heitið Orð fyrir dauða og hefur að geyma alla músík sem hljómsveitin gaf út á þeim 18 mánuðum sem hún starfaði, 1981 til 1982, og áður óútgefnar tónleikaupptökur OG nýjar upptökur sem voru í Sundlauginni í Mosó fyrr á árinu. Pakkinn inniheldur líka stóran og mikinn bókling með myndum, lista yfir alla tónleika hljómsveitarinnar á sínum tíma og frásagnir ýmissa af Purrki Pillnikk - Purrkurinn og ÉG. Purrkur Pillnikk var eitt aðal bandið í Rokki í Reykjavík á sínum tíma og frá þessum ungu mönnum kom eiginlega stefnuyfirlýsing pönkkynslóðarinnar á Íslandi: Það skiptir ekki máli hvað maður getur - heldur hvað maður gerir. Þessir strákar úr Reykjavík sögðu okkur krökkunum á þessum tíma að maður þyrfti ekkert að kunna að spila gítarsóló til að vera í hljómsveit - þeir sjálfir kynnu sama og ekkert en samt væru þeir í hljómsveit. Þetta varð til þess að upp spruttu hljómsveitir um allt land, Músíktilraunir fæddust svo 1982 og svo framvegis. 3 af liðsmönnum Purrksins voru með í Kuklinu og svo í framhaldinu Sykurmolunum sem nokkrum árum síðar prýddi svo forsíðu stóru bresku músíkblaðanna NME og Melody Maker. Purrk Pillnikk skipuðu Einar Örn - rödd, @Bragi Ólafsson á bassa, Friðrik Erlingsson á gítar og Ásgeir Bragason á trommur. Ásgeir er látinn en hinir þrír ásamt Sigtryggi Baldurssyni sem var trommari Sykurmolanna- og í hljómsveitinni ÞEYR í Rokki í Reykjavík, komu saman og spiluðu í Smekkleysubúðinni við Hverfisgötu fyrir hálfum mánuði. Ég náði að plata í Rokkland þá Friðrik og Einar Örn til að spjalla um Purrk Pillnikk - Íslandi árið 1981 - síðpönk - The Fall - afturgöngur - skólahljómsveitir - Gramm - sköpun - leiðindi - Utangarðsmenn - íslensku, og meira að segja jólalög.
Dec 17, 2023
1 hr 50 min
Shane MacGowan hvíl í friði og Elín Hall
Rokkland dagsins er tvískipt. Elín Hall (Elín Sif Hall) kemur í heimsókn og við spjöllum um nýju plötuna hennar og svo minnumst við Shane MacGowan söngvara og skálds þjóðlagapönkarana í The Pogues. Fókusinn er á anti-jólalagið Fairytale of New York sem kom út 1987 en er í dag í 4. sæti breska vinsældalistans og í toppsæti írska vinsældalistans. Útför Shane?s fór fram á föstudaginn í Dublin. Nick Cave og Glen Hansard sungu og Það var dansað. Shane*s hefur verið minnst í öllum helstu fjölmiðlum heims.
Dec 10, 2023
1 hr 50 min
Uppáhalds lög hlustenda Rásar 2 í 40 ár og Kiss
Rás 2 varð 40 ára 1. desember 2023. Eitt af því sem Rás 2 gerði í tilefni af afmælinu var að fá hlustendur til að velja uppáhalds lögin sín frá þessum 40 árum. Það voru gerðar nýjar útgáfur af þessum fjórum lögum í RÚV og þær frumfluttar í Popplandi á afmælisdaginn. Við heyrum þær aftur, viðtöl við höfundana og einnig hvað fólkið á götunni hefur að segja um þessi lög sem eru: Fjöllin hafa vakað (EGO), Vegbúi (KK), Murr Murr (Mugison) og París norðursins (Prins Póló). Hulda Geirsdóttir fór með hljóðnema á samkomu þar sem hópur af aðdáendum hljómveitarinnar Kiss fylgdist með í streymi frá lokatónleikum hljómsveitarinnar frá Madison square Garden í New York. Við kveðjum Kiss í Rokklandi.
Dec 3, 2023
1 hr 50 min
Iceland Airwaves 2023
Rokkland var á Iceland Airwaves á dögunum og Rokkland verður á Iceland Airwaves í dag. Rúmlega 150 listamenn og hljómsveitir spiluðu meira en 250 tónleika í aðal-dagskrá og off venue eins og það heitir, á Iceland AIrwaves í ár. Við heyrum tóndæmi og spjall við Airwaves fólk í þættinum í dag, listafólk gesti og starfsfólk. Rokkland rakst á mikið af skemmtilegu fólki á Airwaves og talaði við marga sem við heyrum í í þætti dagsins: Anna Ásthildur, Goggi í Sigur Rós, Ísleifur Þórhallsson, Anna Jóna Dungal, Kevin Cole, Mummi Lú ofl.
Nov 26, 2023
1 hr 50 min
Hvað ef... Bítlarnir hefðu aldrei verið til? Og Rúnar Þórisson.
Valur Gunnarsson kemur í heimsókn og við veltum fyrir okkur pælingunni: Hvað ef Bítlarnir hefðu aldrei verið til? Valur skrifaði um það í bók sem kom út í fyrra. Rúnar Þórisson var að senda frá sér plötuna Upp Hátt og hann kemur í heimsókn og við heyrum nokkur lög af plötunni.
Nov 19, 2023
1 hr 50 min
Load more