
Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna.Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
May 14
28 min

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld þar sem hann gefur atburðum Sturlungaaldar skáldlegan blæ.Í spjalli okkar við Einar fórum við víða. Við leituðum af höfundi Íslendingasagnanna, ræddum um sannleiksgildi þeirra og uppáhaldssögu Einars.Hlustið og hlýðið!
May 1
45 min

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!
Apr 24
44 min

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund.Hlustið og hlýðið!
Apr 18
40 min

Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.
Mar 31
36 min

Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu. Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!
Mar 31
24 min

Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.
Mar 31
23 min

Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.
Mar 31
24 min

Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.
Mar 31
24 min

Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!
Mar 31
23 min
Load more
