Mótmæli í morgunmat
Mótmæli í morgunmat
Oddný Eir Ævarsdóttir
Mótmæli í morgunmat; friðarviðræður á sunnudagsmorgnum klukkan níu á Samstöðinni. Oddný Eir tekur á móti góðum gestum.
Mótmæli í morgunmat: Snæfellsjökul fyrir forseta!?!
Í friðarviðræðum sunnudagsmorgunsins fáum við frammæli frekar en mótmæli og framboðsumræðu fulltrúa og fylgisfólks Snæfellsjökuls sem er í framboði fyrir forsetakosningar 2024. Er það séns? Hvernig? Af hverju svo bráð(n)-nauðsynlegt? Hvernig forseti yrði jökullinn? Sko í alvöru! Þau koma og segja okkur allt af létta, þau Aðalheiður Kristbjörg, fjölbreytileika-stefnumótunarsérfræðingur, Angela Snæfellsjökuls, framboðsstjóri, Dögg Sigmarsdóttir, fylgjandi Snæfellsjökuls, Goði Blöndal Hermannsson, sérlegur ráðgjafi og stjórnarskrárlesari og Juan Camilo, heimsskautsrefurinn og Snæfellsjökull.
Apr 7, 2024
1 hr 16 min
Hvað nú?
Mótmæli í morgunmat, 24. mars Hvað nú? Listadúóið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa hafið tímabært ferli afbyggingar á óvirka stóriðjuverinu í Helguvík sem stendur eins og minnisvarði um úrelta byggða- og atvinnuþróunarstefnu, nýlenduhyggju og afstöðu til nýrra Íslendinga. Þau hafa gert Listasafn Reykjaness að eins konar safni fyrir niðurstöður óformlegrar rannsóknar á því sem fór úrskeiðis og að vettvangi nýrrar sýnar og samræðu íbúa á svæðinu sem margir koma til Íslands frá löndum illa förnum eftir suddaskap stóriðjufyrirtækja sem hafa forsmáð viðkvæm samfélög og náttúru. Reynsluþekkingin er því mikil á svæðinu og áhugavert að hefja samtal við alla málsaðila, hagsmunafyrirtækin og stofnanirnar sem bera ábyrgð og alla þá sem láta sig framtíð svæðisins og heimsins varða. Í Friðarviðræðum á sunnudagsmorgni ræða Libia og Ólafur um sýningu sína í Listasafni Reykjanesbæjar sem nú stendur yfir og frá fyrirhuguðum opnum fundi 4. apríl næstkomandi sem er hluti af sýningunni og baráttu fyrir aukinni meðvitund um það sem gerðist og það sem hægt er að gera. Hvað nú? Við ræðum líka um afbyggingu á starfi og hlutverki listafólks og hefð mótmæla eða viðspyrnu listafólks á Spáni á alræðistímanum.
Mar 24, 2024
1 hr 13 min
Afneitun á orsök dauða
Mótmæli í morgunmat 10. mars Afneitun á orsök dauða Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi, kennari og formaður umhverfisvaktarinnar er ekki af baki dottin í réttlætisbaráttu sinni; Hún hefur barist fyrir því um áraraðir að hross hennar fái að njóta vafans -og raunar við öll- gagnvart gríðarlegri mengun stóriðjunnar á Grundartanga Ágústa Oddsdóttir kennari og myndlstarkona er með Ragnheiði í stjórn Umhverfisvaktar Hvalfjarðar og hefur líks barist fyrir náttúruvernd í mörg ár. Þær koma í Friðarviðræður og segja söguna af öllum hrossunum sem dóu vegna aðgerðarleysis og afneitunar þeirra sem ættu að bera ábyrgð á eftirliti með áhrifum stóriðjunnar á umhverfið.
Mar 10, 2024
1 hr 17 min
Andófsafl Navalny og áskorun blaðamennskunnar
Mótmæli í morgunmat 25. febrúar Andófsafl Navalny og áskorun blaðamennskunnar Auðunn Arnórsson blaðamaður og sjálfstætt starfandi stjórnmála- og sagnfræðingur og Valur Gunnarsson blaðamaður, sagnfræðingur og rithöfundur mæta í Friðarviðræður og velta fyrir sér framtíð blaðamennsku og rannsóknarblaðamennsku á tímum upplýsingaóreiðu og pólaríseringar. Við pælum í því hvað er óreiða og hvað pólarísering. Við ræðum sérstaklega um nýlegt andlát Navalny, ímynd hans innan lands og utan og fyrir hvað hann stendur í okkar huga. Við ræðum líka um Assange á ögurstundu í réttarhöldum. Við ræðum um áskorun og ábyrgð blaðamanna að segja sannleikann um samtíðina og veita auði, valdi og alræðisöflum aðhald.
Feb 25, 2024
1 hr 20 min
Réttlætisbarátta Kúrda
Í Friðarviðræðum Mótmæla í morgunmat ræðum við um réttlætisbaráttu Kúrda við Ögmund Jónasson sem er nýkominn heim frá kúrdíska sjálfsstjórnarsvæðinu í Írak. Hann vitnar í leiðsögumann kúrdísku andspyrnunnar, Öcalan, sem hefur setið í fangelsi í um þrjátíu ár á Imrali-eyju á Marmarahafi og sagði að við kynnum vissulega að berjast í stríðum en nú yrðum við að láta reyna á samningahæfni okkar og berjast fyrir friðarviðræðum, ekki bara fyrir Kúrda heldur heiminn allan.
Feb 11, 2024
51 min
Andóf rússneskra rithöfunda
Mótmæli í morgunmat, ANDÓF RÚSSNESKRA RITHÖFUNDA. Í friðarviðræðum dagsins ræða Rebekka Þráinsdóttir, aðjúnkt í rússnesku við Háskóla Íslands, doktorsnemi og þýðandi og Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi rússneskra bókmennta og sjálfstætt starfandi fræðimaður um andóf rússneskra og sovéskra rithöfunda fyrr og nú. Þau ræða um róttækni þess að höndla orð og gera ástina að byltingu þegar grimmdin er normið.
Jan 14, 2024
1 hr 16 min
Afstaða Íslands afhjúpuð
Í Friðarviðræðum að þessu sinni er afstaða Íslands til umhverfismála afhjúpuð og rædd í allri sinni svörtustu og björtustu mynd. Í fyrri hluta þáttar koma saman Þorgerður María Þorbjarnardóttir, fomaður Landverndar, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra Umhverfissinna og Guðmundur Steingrímsson, stjórnarmaður í Landvernd. Í seinni hluta þáttar mæta þeir Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður leigjendasamtakanna og Þór Saari, fyrrum þingmaður og hagfræðingur til leiks.
Jan 7, 2024
2 hr 12 min
Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“
Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður - Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“ Sunnudagur, 17. desember. Í friðarviðræður mæta að þessu sinni þau Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálafulltrúi Eflingar og ræða um glimmer-uppákomuna og allt henni tengt, segja frá reynslu sinni og ræða um mótmæli út frá mörgum sjónarhornum á meðan þau skreyta mandarínur með negulnöglum á aðventunni. Undir lok þáttar minnumst við palestínska skáldsins Refaat Alareer, höfundar ljóðsins sem í íslenskri þýðingu Braga Páls Sigurðarsonar heitir ,,Ef ég verð að deyja"
Dec 17, 2023
1 hr 20 min
Friður og ljóð
Mótmæli í morgunmat; Friður og ljóð. Anton Helgi Jónsson og Eyrún Ósk Jónsdóttir ljóðskáld ræða um mátt ljóðsins, gildi samveru- og samstöðuviðburða á ofbeldisöld og lesa hugvekjandi ljóð fyrir okkur á aðventunni.
Dec 10, 2023
59 min
Uppljóstrarar
Mótmæli í morgunmat: Uppljóstrarar. Í Friðarviðræðum rifjum við upp Klaustursmálið svokallaða og setjum það í samhengi borgaralegrar samviskusemi og uppljóstrana á tímum upplýsingaóreiðu, falsfrétta, þöggunartilburða og minnkandi valds fjölmiðla. Viðmælendur eru aðapersónurnar í málinu, Bára Halldórsdóttir, aðgerðarsinni og listakona, Halldór Auðar Svansson, hugmbúnaðarfræðingur og varaþingmaður Pírata og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, verjandi Báru og lögfræðingur Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu.
Dec 3, 2023
1 hr 28 min
Load more