
Atli Fannar Bjarkason og Lóa Hjálmtýsdóttir eru gestir í fjórða þætti af Með Ófærð á heilanum. Nýjar kenningar um fíkniefnaframleiðslu Stórfjölskyldunnar fá byr undir báða vængi og ljóst að Ása, sem reyndar sést ekkert í þessum þætti Ófærðar, veit meira en hún lætur uppi. Spilling innan lögreglunnar og sú staðreynd að tveir þættir af fjórum í þáttaröðinni hafa endað með yfirvofandi misþyrmingu á konu eru líka rædd í kjölinn.
Nov 7, 2021

Edda Falak og Hugleikur Dagsson eru gestir Snærósar í þriðja ófærðarspjallinu. Í þættinum koma upp glænýjar kenningar um hver ber ábyrgð á morðinu á Ívari og vangaveltur heyrast um rómantík í loftinu hjá Andra, ástarsexhyrninga stórfjölskyldunnar og hversu auðvelt það sé að sleppa frá löggunni í sjósundi. Hugleikur leggur fram brakandi ferska kenningu um svikara innan stórfjölskyldunnar og Edda telur morðingjann fela sig fyrir allra augum. Þátturinn inniheldur fullt af spilliefni úr þriðja þætti Ófærðar 3.
Oct 31, 2021

Fjölmiðlafólkið Margrét Erla Maack og Birgir Olgeirsson mættu til Snærósar og veltu upp nýjustu kenningunum um hvað gengur á í Ófærð 3. Hjá hverjum eða hverri svaf Ívar fyrir andlát sitt og hvar var Gunnar kvöldið sem morðið var framið? Það er full ástæða til að vara við spilliefni í þættinum. Það er alls ekki óhætt að hlusta á þáttinn fyrir þau sem ekki hafa séð annan þátt þriðju þáttaraðar af Ófærð.
Oct 24, 2021

Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona og Níels Thibaud Girerd sýningastjóri hjá Íslensku óperunni eru gestir Snærósar Sindradóttir í þessum fyrsta þætti af Með Ófærð á heilanum. Í þættinum er farið yfir víðan völl og oní minnstu smáatriði í fyrsta þætti Ófærðar 3. Passa innréttingarnar í íbúð Andra Ólafssonar við persónu hans? Er meðvirkni séríslenskur plagsiður? Hversu þrúgandi er nærvera Norrænu í smábænum og hversu mikið vesen mun fylgja leðurklæddu herdeildinni sem kom óvænt með skipinu í lok þáttarins? Þátturinn er smekkfullur af spilliefni úr fyrsta þætti Ófærðar 3 svo aðvörunar skal gætt.
Oct 17, 2021

Góðir gestir Snærósar Sindradóttir ætla að rýna í hvern einasta þátt af þriðju þáttaröð Ófærðar, spá í það hver sé morðinginn, hvað Andri Ólafsson lögreglumaður fær sér mörg mjólkurglös áður en hann leysir málið og hvort sérsveitin verði nógu snögg á staðinn til að stöðva ófremdarástandið sem skapast hefur í ískalda og torfæra smábænum sem skapar sögusvið þáttanna. Ekki missa af Með Ófærð á heilanum, í hlaðvarpi og Spilaranum, strax að loknum hverjum þætti af Ófærð 3.
Oct 11, 2021
