
Róbert Arnþórsson er 3. Leiknismaðurinn til að verða vígður inn í Heiðurshöll félagsins. Róbert er markahæsti leikmaður félagsins þó hann hafi ekki náð 100 leikjum fyrir það. Hann settist niður með Snorra og ræddi sinn tíma hjá félaginu og það má með sanni segja að það hafi verið fróðleg frásögn enda hefur heilmikið vatn runnið til sjávar síðan þessi kappi var að raða inn mörkum fyrir félagið.
May 9, 2022
30 min

Þeir Haukur og Valur Gunnarssynir eru fyrstir inn í Heiðurshöll Leiknis (hall of fame) og voru heiðraðir með því að vera fyrstir upp á Wall of Fame vegginn í Austurbergi á fyrsta heimaleik félagsins í Bestu deildinni. Leiknisfólk allt ætti að þekkja andlitin en í spjalli við Snorra fáum við að kynnast þeim aðeins betur og uppruna þeirra hjá Leikni ásamt föður þeirra, Gunnari Góða, sem var ekki minni Leiknismaður og fær að sitja á veggnum með þeim. Til hamingju með þennan heiður þið miklu Leiknismenn. Vel að honum komnir. #StoltBreiðholts#Heiðursmenn
Apr 24, 2022
28 min

Hið árlega spjall við Sigga í upphafi leiktíðar er hér komið fyrir ykkur Leiknisljónin að háma í ykkur. Við köfuðum djúpt í undirbúninginn og þá breytingu á nálgun sem átt hefur sér stað hjá félaginu til að festa sig enn frekar í sessi Bestu deildinni. Njótið!
Apr 15, 2022
50 min

Vélin brunaði úr Breiðholti og hélt suður með sjó í raðir Keflvíkinga í haust. 4 ár að baki í röndum stoltsins okkar, leikmaður ársins 2019 og flottar minningar. Við settumst niður með kappanum og kvöddum hann formlega áður en við mætum honum tvisvar í baráttunni í Bestu deildinni. Takk fyrir okkur Vélin!
Mar 9, 2022
50 min

Leiknisljónavarpið er snúið aftur og spennandi tímabil framundan. En fyrst kveðjum við tvo dáðadrengi sem hafa fylgt félaginu síðustu 4 ár og halda nú á vit nýrra ævintýra. Í þessum þætti er það kveðjustund með Sóloni Breka Leifssyni sem skilaði 69 leikjum með félaginu og 29 mörkum. Okkar maður er hættur knattspyrnuiðkun aðeins 23ja ára en eins og kemur fram í spjallinu mun hann fylgja félögum sínum eftir út ferilinn þeirra á meðan hann tæklar önnur vekrefni.
Mar 6, 2022
1 hr 3 min

Einhver allra hörðustu og háværustu Leiknisljónin lentu í sóttkví eftir Fylkisleikinn og þurftu að finna sér eitthvað til dundurs allir í sitthvoru lagi. Þá var tekið upp hlaðvarp enda um ýmislegt nýtt að ræða. Sævar Atli farinn til Freysa, nýr fyrirliði sem var tekinn stuttu tali og svo bara nýjar raddir í Ljónavarpinu að láta í sér heyra varðandi núverandi tímabil og framtíðina. Þetta var tekið upp á netfundi svo gæðinn eru klárlega ekki þau sömu og venjulega en vonandi þolanleg. Þennan þátt er líka hægt að horfa á á YouTube rás Leiknisljónanna: https://www.youtube.com/channel/UClYZ64v2YX9IIkPl-QCCZHQ
Aug 7, 2021
1 hr 20 min

Óskar Már Alfreðsson, El Normale, Domusnovakóngurinn og hvaðeina, er maðurinn sem mætti í spjall við þá Snorra og Hannes um stöðuna í deildinni, frammistöðu liðsins og umhverfi félagsins fyrir bikarleikinn gegn Val á Hlíðarenda. Óskar er ekki vanur að halda aftur af sér og skemmst er frá því að segja að þetta var snarp en skemmtilegt spjall. Njótið vel.
Jun 23, 2021
45 min

Það er komið að hinu árlega spjalli við aðalþjálfara Leiknis sem blessunarlega er Siggi Höskulds. Þegar 3 dagar eru í fyrsta leik í Pepsi-Max settist hann niður með Snorra og svaraði nokkrum spurningum um hópinn, stemninguna, taktíkina og annað slíkt. Það er skemmst frá því að segja að okkar maður er klár í bátana og tilbúinn að sokka þá sem spá liðinu umsvifalausu falli niður í Lengjudeild á ný. #StoltBreiðholts#HverfiðKallar#SockTheWorld
Apr 28, 2021
32 min

Þeir Juarez og Agon héldu áfram að greina hópinn með Snorra og kláruðu miðju og sókn þar sem ýmis umræðuefni komu upp eins og við var að búast. Hér eru leikmennirnir sem til tals komu. Það var bara Bandaríkjamaðurinn Máni Austmann sem skilinn var eftir útundan enda vitum við ekkert hvenær má búast við honum til baka úr NCAA ævintýrinu. Emil Berger 1:28Danni Finns 8:05Vélin Ernir Bjarna 14:10Daði Bærings 17:25Árni Elvar 19:55Octavio 23:40Davíð Júlían 30:30Shkelzen Veseli 33:25Róbert Quental 35:10Manga 37:35Sólon 43:35Gústi 47:38Sævar Atli 52:50
Apr 28, 2021
1 hr 3 min

Þeir Juarez og Agon slógust í hóp með Snorra til að ræða allan leikmannahópinn eins og venja er orðin fyrir byrjuna tímabils. Þessir ungu menn eru nýbúnir með 2. flokkinn og spila báðir fyrir KB í sumar en þeir höfuð sitthvað að segja um þá leikmenn sem Siggi leiðir inn í bardagann í sumar. Við byrjuðum á að ræða markverði og vörn og eiga þeir þennan þátt. Fyrir þá sem þykjast þekkja ákveðna leikmenn og þurfa ekkert að fræðast um þá, þá geta þeir skippað yfir því hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem ræddir voru í þessu Ljónavarpi og hvenær umfjöllun um þá hefst: Markið:Guy Smit 3:10Viktor Freyr 8:20Bjarki Arnaldar 10:05Miðverðir: Bjarki Aðalsteins 12:57Binni Hlö 16:30Loftur 21:15Dagur 24:18Gyrðir 27:20Ósvald 34:35Arnór Ingi 39:15Birgir Baldvinsson 43:15Birkir Björns 45:40Andi Hoti 47:05#StoltBreiðholts#HverfiðKallar
Apr 27, 2021
52 min
