Show notes
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar.CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir nokkrum dögum en þar fóru af stað orðrómar um útgáfu Switch 2. Rætt er um þessa orðróma í þættinum og við hverju má búast frá Nintendo.Þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!

