Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
nordnordursins
Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum
1 hour 44 minutes Posted Aug 9, 2022 at 5:56 pm.
0:00
1:44:10
Download MP3
Show notes

Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í gegnum PlayStation-leikjatölvuna og rætt um fréttir sem tengjast PlayStation 5, PSVR2 og Quest 2 sýndarveruleikagleraugunum. Í lok þáttar er fjallað um bílaleikinn Hot Wheels Unleashed sem býður spilurum meðal annars upp á það að búa til sínar eigin brautir. Allt þetta og fleira í fertugasta og þriðja þætti af Leikjavarpinu, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins!

Efni þáttar:

  • Hvað er verið að spila?
  • Háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator
  • Kisuleikurinn Stray
  • Hvernig virkar að streyma PS-leikjum?
  • PS5 með stuðning við 1440p skjái
  • PSVR2 upplýsingar og Quest 2 hækkar í verði
  • Hot Wheels Unleashed 

 

Myndir úr Stray og PowerWash Simulator, Pride fáninn ásamt digital töfrum Bjarka

Tónlist:

"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)

Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/