Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
nordnordursins
Leikjavarpið #18 - Sæberpönk, grísk goðafræði og Xbox Series X
1 hour 35 minutes Posted Dec 21, 2020 at 7:15 pm.
0:00
1:35:41
Download MP3
Show notes

Í áttjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox Series X á landinu undanfarnar vikur og segir frá helstu kostum og göllum og ber saman við PlayStation 5. Daníel og Sveinn spiluðu Immortals: Fenyx Rising  og segja þeir frá leiknum sem tengist grískri goðafræði. Þátturinn endar svo á Cyberpunk 2077 skandalinum - leikurinn kom út þann 10. desember og síðan þá hefur leikurinn verið harðlega gagnrýndur fyrir tæknilega galla sem hefur áhuga á spilun leiksins.

 

Efni þáttarins:

Game Awards 2020

Tell Me Why 

Xbox Series X

Immortals: Fenyx Rising

Cyberpunk 2077 skandallinn

 

Þættinum var streymt í beinni á Twitch þann 20. desember og þökkum við áhorfendum og hlustendum kærlega fyrir okkur!

 

Mynd: Cyberpunk 2077 og Immortals: Fenyx Rising

Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/