Leikhúsið
Leikhúsið
Hlaðvarp Fréttablaðsins
Leikhúsið er vikulegur hlaðvarpsþáttur sem fjallar um allar leiksýningar vetrarins 2019/2020. Þáttastjórnendurnir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi.
Hans Klaufi
Kjartan fór með systur sinni á Hans Klaufa sem sýnt er í Tjarnarbíó og gerði heiðarlega tilraun til að útskýra hana fyrir Magnúsi. Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins.
Mar 5, 2020
34 min
Er ég mamma mín?
Er ég mamma mín? Er Kjartan pabbi minn? Er Magnús sonur minn? Þessum spurningum ásamt fleirum verður svarað í þætti vikunnar. Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins.
Feb 27, 2020
43 min
Helgi Þór rofnar
Annað en Magnús sá Kjartan EKKI Helga Þór rofnar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Í þættinum gerir Magnús heiðarlega tilraun til að útskýra sýninguna á meðan Kjartan er að drepast í maganum. Þáttur vikunnar er í boði The Mistress og er framleiddur fyrir hlaðavarp Fréttablaðsins.
Feb 13, 2020
42 min
Vanja frændi
Kjartan og Magnús sáu Vanja frænda sem sýnt er á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þeir fjalla um pissuvandamál í leikhúsi, hvort að titilpersóna verksins heiti Vanja í raun og veru og hvort þetta 100 ára gamla leikrit eigi erindi við samfélagið í dag.
Feb 6, 2020
42 min
Engillinn
Í þætti vikunnar tala Kjartan og Magnús um Engilinn í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Leikhúsið er framleitt fyrir hlaðvarp Fréttablaðsins.
Jan 29, 2020
39 min
Meistarinn og Margaríta
Í þætti vikunnar ræða Kjartan og Magnús Meistarann og Margarítu sem er sýnd á Stóra Sviði Þjóðleikhússins.
Jan 23, 2020
42 min
Um tímann og vatnið
Kjartan og Magnús fengu góðan gest með sér í þátt vikunnar, Melkorku Gunborg, til að tala um fyrirlestur Andra Snæs Um tímann og vatnið í Borgarleikhúsinu. Þátturinn er í boði Fylgifiska og Burro.
Dec 12, 2019
48 min
Skjáskot
Kjartan og Magnús fóru á fyrirlestur Berg Ebba um Skjáskot á Nýja Sviðinu í Borgarleikhúsinu. Þeir ræddu áhrif tækniframfara síðustu ára á líf okkar, framkomu Magnúsar í Söngvakeppni Sjónvarpsins um árið og af hverju öll leikrit væru ekki bara fyrirlestrar. Þáttur vikunnar er í boði fornbókabúðarinnar Bókin og veitingastaðarins Burro.
Dec 5, 2019
49 min
Eitur
Kjartan og Magnús sáu Eitur í Borgarleikhúsinu og ræddu úrelt kynjahlutverk, hvað vatnið hjá 101 væri vont og hvað það sé gaman að fá loksins að sjá Hilmi Snæ.
Nov 28, 2019
42 min
Atómstöðin - endurlit
Kjartan og Magnús fóru á Atómstöðina í Þjóðleikhúsinu og ræddu meðal annars undarlegt atvik sem átti sér stað á meðan á frumsýningunni stóð, fæðingu kapítalismans á Íslandi og klisjuna um sveitastelpuna sem flytur í borgina.  Þáttur vikunnar er í boði Burro.
Nov 21, 2019
50 min
Load more