
Jólin nálgast og eftir innan við viku sitjum við flest með fjölskyldum okkar við jólaborðið, södd og sæl með tilhlökkun í maganum yfir því að sjá börnin opna gjafirnar. Fyrir einhverja hefur aðventan verið kvíðvænleg en allt kemur loks heim og saman á aðfangadagskvöldi, í friði og ró. Jólunum fylgja gjarnan bækur, konfekt, kertaljóst og hlýir sokkar. Allt það sem er best. En jólunum getur líka fylgt allt það sem er verst. Við upplifum þennan tíma öll misjafnt. Einhverjir sitja ekki rólegir á heimili sínu um jólin heldur í ókunnugu húsi að flýja aðstæður sem voru orðnar óbærilegar. Gestur þáttarins er Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfins. Hún hefur skipulagt ófá jól í Kvennaathvarfinu og veit því nákvæmega hvaða þarfir þarf að uppfylla hjá hópnum sem til athvarfsins leitar, á hátíð ljóss og friðar.
Dec 18, 2021
40 min

Unaður hefur ekki alltaf verið umræðuefni sem nær máli í jafnréttisbaráttunni. Það er sannarlega auðvelt að afgreiða unað sem munað og forgangsraðað formlegri afkimum baráttunnar, á borð við launamun kynjanna og skiptingu heimilisstarfa, framar en mikilvægi kynlífs og nautna hverskonar. Reynslan hefur þó kennt baráttufólki að kynjuð nálgun í samskiptum er alls ekki skilin eftir fyrir utan svefnherbergisdyrnar. Í rúminu hafa fullnægingar karla jafnan þótt sjálfsagðar en fullnægingar kvenna einhverskonar fjallganga. Þrekraun þar sem ekki allir komast upp á topp. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar í þessum efnum á skömmum tíma og umræðan um kynlíf, nautn og fantasíur gjörbreyst. Þrátt fyrir það hafa kynferðismál hinseginfólks fengið litla sem enga umfjöllun í fjölmiðlum og oft vill vera að opinbert samtal um kynlíf einskorðist við kynlíf gagnkynja para. Kynfræðsla innan skólakerfisins snýst meira um líffræði og smitsjúkdóma en líðan og ánægju - og lítið fer fyrir því að kynlíf sé rætt sem sjálfsagður hlutur í lífi fullorðins fólks þar sem enginn er þó fullnuma fyrr en ævin er á enda. Gestur þáttarins er Birna Gústafsson kynfræðingur sem segist líta á kynferðislegan unað sem mannréttindi, ekki óþarfa dekur. Hún heldur úti hlaðvarpi um kynlíf og tekur að sér fræðslu fyrir fullorðið fólk um blæti, kynlífstæki, fullnægingar og allt annað sem tengist þessu víðfeðma sviði.
Dec 11, 2021
40 min

Umræðan um hvers kyns ofbeldi hefur galopnast undanfarin ár. Flestir hafa þakkað þessari tilfinningabyltingu samfélagsmiðlum og þeirri staðreynd að þar getur fólk tjáð sig um áföll sín, fengið stuðning frá jafningjum og verið eitt lóð á vogarskálar byltinga á borð við #metoo. Málið er hins vegar ekki svo einfalt. Fjölmiðlar hafa gegnt lykilhlutverki í að gefa þolendum rödd og opna umræðuna. Vandaðar umfjallanir og viðtöl hafa normalíserað það að þolendur, bæði konur og karlar, stígi fram og tjái sig um reynslu sína. Segi frá. Að baki slíkum umfjöllunum liggur jafnan þaulhugsuð vinna blaðamanns sem hefur lagst í mikla vinnu við að fá söguna staðfesta, stundum með þeim gögnum sem fyrir liggja í málinu, eða vitnisburði annarra sem geta varpað ljósi á brotið sem um ræðir. Það er óhætt að segja að viðmælandi minn að þessu sinni sé að einhverju leyti brautryðjandi í umfjöllunum um ofbeldismál. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, á að baki fimmtán ára feril í fjölmiðlum og hefur á því tímabili tekið ógrynni viðtala við þolendur ofbeldis, opnað stór mál þar sem misrétti hefur fengið að viðgangast og sannarlega verið mætt af mikill hörku vegna umfjallana sinna, meðal annars með ofsóknum og lögsóknum.
Dec 4, 2021
40 min

Baráttufólki fyrir jafnrétti kynjanna hefur lengi orðið tíðrætt um ofsóknir og áreiti sem þau verða fyrir baráttu sinnar vegna. Nafntogaðir feminístar hafa líst því að hafa orðið fyrir hótunum og eru í ákveðnum kreðsum úthrópaðir fyrir skoðanir sínar - jafnvel hefur nafn þeirra orðið eins og samnefnari fyrir samfélagsgerð sem andfeminístar finna allt til foráttu. Þess vegna er svo merkilegt þegar ný andlit stíga fram af krafti inn í jafnréttisbaráttuna, óhrædd við að valda usla eða móðga fólk sem finnst samskipti kynjanna bara vera í stakasta lagi. Einn slíkur hópur baráttufólks, sem kemur fram undir nafninu Öfgar, hefur vakið gríðarlega athygli síðan í vor og mjög fljótt stimplað sig inn í feminíska umræðu, með einarðri afstöðu sinni í ofbeldismálum og sterkum skoðunum á því hvernig samfélagið getur gert miklu miklu betur í þeim efnum. Gestur þáttarins er Ólöf Tara Harðardóttir einkaþjálfari og meðlimur Öfga.
Nov 27, 2021
39 min

Síðan í sumar hefur klefakúltúr í knattspyrnu verið mikið í umræðunni sem og önnur menning innan íþróttahreyfingarinnar sem sumir segja vera eitraða en aðrir kannast ekkert við. Íslenskir karlmenn hafa kannski aldrei verið þekktir fyrir neina sérstaka séntilmennsku en hvar liggja mörkin á milli karlagrobbs og dónaskapar - daðurs og kynferðislegrar áreitni? Sumum þykja þessi mörk afar skýr, öðrum að samfélagið hafi breyst á ógnarhraða og bókstaflega ekkert megi lengur.
Gestur þáttarins er fótboltamaðurinn Garðar Gunnlaugsson. Garðar hefur undanfarið stigið fram í opinberri umræðu og lýst yfir stuðningi við málflutning þeirra sem berjast gegn kynferðisofbeldi. Hann hefur sömuleiðis tjáð sig um klefakúltúr í boltanum og sagt íþróttahreyfinguna þurfa að taka sér taki.
Nov 20, 2021
40 min

Ísland er friðsælt land og þjóðin stolt af því að vera fjarri vígavöllum jarðarinnar. Í stríðshrjáðari hluta heimsins eru byssur og bombur ekki einu meðölin sem beitt er í átökum, heldur hefur kvenlíkaminn hreinlega orðið vígvöllur og ofbeldi gegn konum notað markvisst til að berja á bak aftur varnir þjóða og þjóðarbrota. Gestur þáttarins er Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur á sviði jafnréttismála. Magnea hefur unnið víðsvegar um heim við að bæta líf stúlkna og kvenna, meðal annars í Afganistan, Balkanskaganum og í Ísrael og Palestínu en einnig starfað í teymi Alþjóðaráðs Rauða krossins við fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð við kynferðisofbeldi sem framið er í tengslum við vopnuð átök.
Nov 13, 2021
40 min

Á undanförnum árum hafa augu margra opnast fyrir því að heimurinn sé ekki svarthvítur eða skipt í tvennt í neinum skilningi og þó margir upplifi sig kvitt og klárt sem karl eða konu - er það ekki veruleiki allra. Kynsegin fólki hefur fjölgað og til marks um það voru lög um kynrænt sjálfræði samþykkt á Alþingi á nýliðnu kjörtímabili og aukið frelsi tekið upp í málum er varða kyn og kyngervi. Þessu hefur þó mætt mótstaða, stundum formlegs eðlis innan veggja Alþingis eða í harðri umræðu athugasemdakerfanna, en stundum í agnarsmáum mótmælaaðgerðum þeirra sem telja sig ekki skilja, eða vilja ekki skilja um hvað málið snýst. Gestir þáttarins eru mæðginin Eden Frost Kjartansbur og Unnur Brá Konráðsdóttir en Eden Frost er sautján ára og nýkomið út úr skápnum sem kynsegin.
Nov 6, 2021
34 min

Árið 2019 kom út bókin Invisible women: Exposing data bias in a world designed for men eftir breska feministann Caroline Criado Perez. Bókin varpar ljósi á það hvernig kerfin sem byggð eru í kringum okkur gera ráð fyrir körlum en ekki konum, og hvernig það hefur afleiðingar fyrir allt líf kvenna. Sumar þessara afleiðinga eru hættulegar og heilsufarslegar. Bókin er nýverið komin út í íslenskri þýðingu, Sæunnar Gísladóttur hagfræðings og blaðamanns og hefur hlotið nafnið Ósýnilegar konur, afhjúpun gagnahlutdrægni í heimi hönnuðum fyrir karla.
Oct 30, 2021
40 min

Þorbjörg Þorvaldsdóttir hefur verið formaður Samtakanna '78 síðan 2019 en hún er tvíkynhneigð og hefur verið með konunni sinni frá átján ára aldri. Vegna þeirra langa sambands draga margir þá ályktun að Þorbjörg sé lesbía en hún segir að tví- og pankynhneigðu fólki sé oft mætt af skilningsleysi. Margir virðist telja að tví- og pankynhneigðir séu lauslátari, ótrúir mökum sínum eða viti einfaldlega ekki hvað þeir vilji.
Í þættinum eru þessi málefni rædd en jafnframt er farið víðan völl um stöðu hinsegin fólks á Íslandi í dag og hverjar helstu áskoranir Samtakanna '78 séu árið 2021.
Oct 23, 2021
40 min

Það eru fáir sem vita hvað svokallaðir "chasers" eru aðrir en transkonur á stefnumótaforritum en fólk sem blætisvæðir transfólk er ein birtingarmynd þeirra fordóma sem það mætir í sínu daglega lífi. Í þættinum ræða Sæborg Ninja Urðardóttir og Andie Sophia Fontaine upplifun sína af stefnumótamenningunni hér á landi fyrir transkonur og dónaskapinn sem þeim mætir oft á tíðum.
Oct 16, 2021
39 min
Load more
