Karlmennskan
Karlmennskan
Þorsteinn V. Einarsson
Gagnrýnið og kynjað sjónarhorn á völd og viðmið.  Bakhjarlar fjármagna meðal annars hlaðvarpið Karlmennskan. Þú getur verið eitt þeirra: https://www.karlmennskan.is/styrkja 
3.18: SUÐ – Svandís Anna Sigurðardóttir (Stígamót)
„Við eigum svo erfitt með að horfa á einhvern sem okkur þykir vænt um og segja: Þessi manneskja hefur beitt ofbeldi eða verið að meiða einhvern. Við erum enn svo léleg í þessu,“ segir Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Stígamótum. Stígamót standa árlega fyrir átaksverkefninu Sjúk ást, sem er ætlað ungu fólki. Kveikjan að verkefninu er hversu algengt kynferðisofbeldi er meðal ungs fólks og hversu oft hefði mátt koma í veg fyrir skaða með fræðslu. Svandís Anna segir að fræðsluefnið nýtist ekki síður eldra fólki, sem hafi oft fengið mun minni fræðslu en tíðkast í dag. Ungt fólk sé almennt upplýst, þekki mörkin sín og sé meðvitað. Suð sé hins vegar algengt þar sem gengið sé á mörkin aftur og aftur þar til þau gefa sig. Sá sem suðaði upplifir að samþykki hafi fengist. Sú sem gaf sig og brotið var á situr hins vegar oft eftir með sjálfsásakanir. Þessi mál séu flókin í úrvinnslu. Þess vegna var áhersla Sjúk ást í ár á suð.   Efnistök: Suð, karlmennska og kvenleiki, kynlífshandrit, kynferðisofbeldi, Sjúk ást, klám og viðhorf til kynlífs.   Viðmælandi: Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Stígamótum. [Tekið upp í mars 2026]
Jul 16
32 min
3.17: Íslenzka – Iris Edda Nowenstein
Iris Edda Nowenstein er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum. Iris er innflytjandi sem kom sex ára gömul til Íslands og ólst upp við að tala frönsku við mömmu sína og spænsku við pabba sinn. Reynsluna af því að læra íslensku sem annað mál nýtir Iris í rannsóknum sínum og telur það ekki íslenskri tungu til framdráttar að líta á fjöltyngi eða önnur tungumál sem ógn.   Við ræðum íslenskuna sem lifandi, breytilegt og pólitískt fyrirbæri, stafsetningarskömm, málfarslöggur, kynjað og kynhlutlaust tungumál, rapp og málfærnina sem það krefst, enskuáhyggjur, TikTok, innflytjendur, útilokun, inngildingu og þá furðulegu hugmynd að tungumál þurfi helst að verja með stríði og sótthreinsun. Þetta er þáttur um íslenska tungu en ekki síður um vald og viðmið. Iris varpar ljósi á hvernig við getum ræktað íslenskuna án þess að nota hana sem vopn gegn fólki.   Viðmælandi: Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðingur á Landspítalanum.   Tekið upp í mars 2026.     Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr. Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr. Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr. Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
Jun 14
42 min
3.16: Ekki alltaf glimmer og Pride – Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir
„Við sem samfélag [þurfum] að koma út úr skápnum með þetta til þess að við getum dregið úr ofbeldi í nánum hinsegin samböndum og skömminni sem því fylgir. Óttinn við bakslag er eðlilegur, en Pride er uppreisn og við látum ekki ótta stöðva okkur […]“   Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir kynjafræðingur og kennari gerði meistararannsókn um ofbeldi í nánum hinsegin samböndum. Hún segir frá rannsókn sinni, því hvernig hinsegin þolendur eru oft teknir út fyrir sviga í rannsóknum á ofbeldi og hversu flókið það getur verið að tala um ofbeldi innan jaðarsetts samfélags á tímum bakslags. Við förum meðal annars inn á þögnina, skömmina, vænta fordóma, valdatengsl innan hinsegin samfélagsins, félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar ofbeldis og þá mýtu að hinsegin sambönd séu einhvern veginn alltaf falleg, heilnæm og laus við ofbeldi.   Viðmælandi: Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir Tekið upp 26. maí 2026     Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr. Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr. Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr. Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
May 27
1 hr 2 min
3:15: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir – „Það er enginn heilsukvilli sem hrjáir bara feitt fólk“
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir er félagsfræðingur að mennt og hefur talað fyrir líkamsvirðingu undanfarinn áratug. Hún vill að heilbrigðisyfirvöld leggi áherslu á þyngdarhlutlausa nálgun að bættri heilsu í stað þyngdarmiðaðrar. Tara Margrét þurfti að draga sig í hlé úr opinberri umræðu vegna álags eftir ítrekaðar hótanir, niðurlægingar og viðbjóð sem virðist fylgifiskur þess að gagnrýna viðtekin viðmið. Tara Margrét rauf nýverið fjögurra ára þögn þegar hún sendi inn umsögn um þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn offitu. Tara Margrét segir að öll sjónarmið um þyngdarhlutlausa nálgun hafi verið virt að vettugi í þeirri tillögu. Í þessum þætti útskýrir Tara Margrét hvað þyngdarhlutlaus nálgun þýðir, hvers vegna orðræða og aðgerðir með áherslu á þyngd valda fólki skaða, hvers vegna heilsa og þyngd fara ekki endilega saman og reynslu Töru Margrétar af samskiptum við heilbrigðisyfirvöld.   Viðmælandi: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir Tekið upp: 20. mars 2026.   Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr. Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr. Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr. Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
Apr 28
40 min
3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og á langan pólitískan feril að baki, þótt hún sé einungis sextug. Hún kom að stofnun Röskvu 1988, sameiningu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og Alþýðuflokksins í Samfylkinguna og hún var umhverfisráðherra í miðju hruninu 2007–2009. Þórunn er femínisti og hefur lengi barist fyrir kvenréttindum og mannréttindum. Þrátt fyrir reynslu af sameiningu og þátttöku í ýmsum framfaramálum þá hefur gengið á ýmsu á Alþingi og innan Samfylkingarinnar. Við ræðum pólitíska fortíð og nútíð, hægrið, rasisma, útlendingamál, femínisma, feðraveldi, peninga og flótta kanóna úr Samfylkingunni.   Viðmælandi: Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis Tekið upp 10. apríl 2026.   Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar
Apr 12
53 min
3.13 „Þessi skömm og sektarkennd“ – Börkur Reykjalín Brynjarsson
Börkur Reykjalín Brynjarsson er verkfræðingur sem rak fjölskyldufyrirtækið en brann út, varð fyrir kulnun, greindist með ofsakvíða og þunglyndi. Í kjölfarið fór hann að prufa leiðir til að ávaxta peninginn sem varð eftir við lokun fyrirtækisins en endaði á að festast í vítahring spilarfíknar. Þögnin, skömmin, sektarkenndin og vonleysið rændi hann næstum því lífsviljanum. Börkur leitaði til Píeta samtakanna og loks í meðferð við spilafíkn. Börkur er ennþá að glíma við afleiðingar spilafíkninnar og er að vinna úr sínum málum en finnst mikilvægt að tala um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Kaldhæðnislega eða sem betur fer hefur Börkur kynnst starfi Píeta samtakanna en hann hefur skipulagt árlegt hlaup til styrktar og vitundarvakningar um mikilvægi samtakanna í rúm sex ár - löngu áður en hann sjálfur þurfti á þeim að halda. Næsta hlaup fer fram laugardaginn 11. apríl við Vífilsstaðavatn, í Hólmavík, Dalvík og Fáskrúðsfirði.   Viðmælandi: Börkur Reykjalín Brynjarsson Tekið upp 8. apríl 2026
Apr 8
31 min
3.12: „Þögnin hefur kostað mig svo margt“ – Sara Gabríela
„Ég vakna á endurlífgunardeild fyrir tveimur árum og eftir það langar mig að stíga út úr þessu.“ segir Sara Gabríela. Við áttum börn á sama leikskóla og höfðum nokkrum sinnum spjallað lítillega. Þegar ég rakst á Söru Gabríelu í gegnum algoriðmann á TikTok kannaðist ég við nafnið en alls ekki manneskjuna. Þessi þögla, hlédræga og feimna kona var svo róttæk, beinskeytt og hæðin að ég þekkti hana ekki.   Ég las á milli línanna að á bak við óheftu tjáninguna væri reiði yfir einhverju sem virðist fá að viðgangast óáreitt. Eitthvað sem tengist kynferðisbrotum, spiritualísku umhverfi og börnum. En ég áttaði mig ekki á því hverju Sara Gabríela var nákvæmlega að ýja að.   Þetta viðtal er rosalegt. Ég set risa TRIGGER WARNING á hlustunina því Sara talar um sjálfsvígstilraun, ítrekuð kynferðisbrot, barnaníð, morðhótanir og viðbjóð sem virðist fá að þrífast innan ákveðins kúltúrs eða költs á Íslandi. Sara Gabríela er komin með nóg af þöggun og því að vera þvinguð til að „haga sér“. Hún „trollar“ á TikTok og er að skrifa bók samhliða því sem hún hlúir að sjálfri sér og styður dóttur sína.   Viðmælandi: Sara Gabríela Tekið upp í mars 2026.   Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr. Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr. Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr. Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
Mar 30
1 hr 20 min
3.11: „Kirkjan hefur lært af sögunni“ – GUÐRÚN KARLS HELGUDÓTTIR Biskup Íslands
Traust til Þjóðkirkjunnar fer stigvaxandi og jafnvel róttækustu femínistar landsins hafa trú á biskupi Íslands. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands vill vera sýnileg og gera kirkjuna að jákvæðu afli í samfélaginu. Biskupsmálið, rannsóknarskýrslan og mistök kirkjunnar koma til umræðu. Við ræðum aukna kirkjusókn ungs fólks, íhaldssemi, kynferðisofbeldi, Biblíuna, trú og mennsku. Hvers konar karlmennsku hefur kirkjan ungum strákum upp á að bjóða og hvaða arfleifð vill biskupinn Guðrún skilja eftir sig?   Viðmælandi: Guðrún Karls Helgudóttir Tekið upp í mars 2026   Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við framleiðslu á hlaðvarpinu.  Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr. Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr. Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr. Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
Mar 25
46 min
3.10: HALLGRÍMUR HELGASON „Karlar deyja andlegum dauða upp úr fimmtugu“
Myndlistamaðurinn og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er á sjötugsaldri en er talinn af sumum allt of woke. Hallgrímur var á sextugsaldri þegar hann eignaðist barn með konu sinni en árinu áður hafði hann orðið afi. Við ræðum woke og histeríska umræðuhefð, „sjúkdóm“ sem herjar á karlmenn og dregur þá til andlegs dauða, pabbafa hlutverkið og rifjum upp viðbrögð menningarelítunnar þegar Hallgrímur opnaði sig um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir.   Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við útgáfu á hlaðvarpinu Karlmennskan. Þú getur verið einn af þeim. karlmennskan.is/styrkja
Mar 12
1 hr
3.9: „Ég ætlaði sko ekki að verða femínisti“ – Tanja Mjöll Ísfjörð
Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir telur að nú sé kominn tími til að færa fókusinn frá þolendum yfir á gerendur ofbeldis. „Ég vil tala um að þeir eru alls konar og, triggerandi fyrir mig að segja, en margir af þessum mönnum eru góðir við vini sína og hinn og þennan en svo eru þeir ofbeldismenn.“ Tönju var útskúfað úr samfélagi sínu og heimabæ eftir að hafa sagt frá og tilkynnt ofbeldi af hálfu lögreglumanns. Augngotur, skilaboð og hótanir leiddu Tönju til Noregs þar sem hún býr enn með Nóa, manninum sínum, og tveimur ungum börnum þeirra. Tanja hefur tekið virkan þátt í baráttu gegn ofbeldi í um áratug, þrátt fyrir að vera aðeins nýorðin 31 árs. Hún var hins vegar alls ekki femínísk þegar hún hóf nám í Borgó og fór í kynjafræði hjá Hönnu Björgu, en þar opnuðust augu hennar rækilega.   Viðmælandi: Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir   Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar. Vertu með.
Mar 4
46 min
Load more